Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Öldungaráð - 31. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Helga Guðrún Jónasdóttir - formaður
  • Bergur Þorri Benjamínsson - aðalfulltrúi
  • Jónas Már Torfason - aðalfulltrúi
  • Geir Þórðarson - aðalfulltrúi
  • Hermann Ottósson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Margrét Halldórsdóttir - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Stefanía Björnsdóttir - aðalfulltrúi
  • Eyrún Björk Svansdóttir - aðalfulltrúi

Starfsmenn

  • Jón Kristján Rögnvaldsson - starfsmaður nefndar
  • Anna Guðrún Halldórsdóttir - starfsmaður velferðarsviðs

Ritari

  • Anna Guðrún Halldórsdóttir

Kosning varaformanns. Helga formaður tilnefnir Bergi Þorra. Samþykkt án athugasemda.

Dagskrá fundar

Almenn mál

01

Áskorun um mótvægisaðgerðir vegna framkvæmda

Erindi frá FEBK um aðstæður íbúa í Fannborg og Hamraborg vegna framkvæmda.

Herdís Guðrún Svansdóttir og Sigrún María Kristinsdóttir sitja þennan fundarlið og kynna aðgerðir Kópavogsbæjar.

Öldungaráð þakkar fyrir góða kynningu.

Almenn mál

02

Kynning á starfsemi velferðarsviðs

Jóhanna Lilja Ólafsdóttir kynnir starfsemi velferðarsviðs.

Öldungaráð þakkar fyrir góða kynningu og öldungaráð hlakkar til samstarfs við velferðarsvið á kjörtímabilinu.

Almenn mál

03

Kynning á nýju fyrirkomulagi frá heilsugæslunni

Eyrún Björk Svansdóttir frá heilsugæslu Höfuðborgarsvæðins heldur erindi um breytingu á fyrirkomulagi vegna tímabókana til lækna.

Öldungaráð þakkar fyrir kynninguna en leggur áherslu á að eldra fólk sem hefur ekki góða færni á tölvu fái stuðning við hæfi við að bóka tíma á heilsugæslu.

Almenn mál

04

Breytingar á reglum um akstursþjónustu eldra fólks

Drög að breytingum á reglum um akstursþjónustu fyrir eldra fólk vísað til umsagnar til Öldungaráðs.

Öldungaráð samþykkir drög að reglum fyrir akstursþjónustu eldra fólks fyrir sitt leiti.