Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Breytingar á reglum um akstursþjónustu eldra fólks

Málsnúmer: 26081402

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3268. fundur

Drög að breytingum á reglum um akstursþjónustu eldra fólks lögð fram til afgreiðslu.

Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

02

Velferðar- og mannréttindaráð - 22. fundur

Drög að breytingum á reglum um akstursþjónustu eldra fólks lögð fram til afgreiðslu.

Meirihluti velferðar- og mannréttindaráð samþykkir breytingar á reglum um akstursþjónustu eldra fólks fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar bæjarstjórnar.

Örn Arnarson aðalmaður Samfylkingar og Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir aðalmaður Viðreisnar sitja hjá.

03

Öldungaráð - 31. fundur

Drög að breytingum á reglum um akstursþjónustu fyrir eldra fólk vísað til umsagnar til Öldungaráðs.

Öldungaráð samþykkir drög að reglum fyrir akstursþjónustu eldra fólks fyrir sitt leiti.

04

Velferðar- og mannréttindaráð - 20. fundur

Lögð fram til kynningar og umræðu að nýju drög að breytingum á reglum um akstursjónustu eldra fólks ásamt minnisblaði um breytingar á gjaldskrá.

Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrir sitt leyti drög að breytingum á reglum um akstursþjónustu fyrir eldra fólk og vísar þeim til umsagnar í öldungaráði.

05

Velferðar- og mannréttindaráð - 19. fundur

Lögð fram til kynningar og umræðu drög að breytingum á reglum Kópavogsbæjar um akstursþjónustu eldra fólks.

Velferðar- og mannréttindaráð þakkar fyrir kynninguna.