Öldungaráð - 28. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Jón Atli Kristjánsson - formaður
- Baldur Þór Baldvinsson - aðalmaður
- Björg Baldursdóttir - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
- Stefanía Björnsdóttir - aðalmaður
- Huldís Mjöll Sveinsdóttir - aðalmaður
- Geir Þórðarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Kristín Þyri Þorsteinsdóttir - starfsmaður nefndar
Ritari
- Kristín Þyrí Þorsteinsdóttir
Dagskrá fundar
Breytingar hafa orðið á skipan öldungaráðs og má sjá yfirlit yfir sitjandi aðalmenn og varamenn hér á eftir.
Formaður ráðs
Jón Atli Kristjánsson
Aðalmenn
Baldur Þór Baldvinsson (FEBK)
Björg Baldursdóttir (B)
Geir Þórðarson (FEBK)
Jón Atli Kristjánsson (D)
Huldís Mjöll Sveinsdóttir (Heilsugæslan)
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir (P)
Stefanía Björnsdóttir (FEBK)
Varamenn
Bergljót Kristinsdóttir (S)
Eiríkur Valdimarsson
Helga Jónsdóttir (Y)
Helgi Ágústsson
Margrét Halldórsdóttir
Orri Vignir Hlöðversson (B)
Sigurður Sigfússon
Breyting á skipan öldungaráðs kynnt ráðinu.
Geir Þórðarson kemur inn sem aðalmaður í ráðið í stað Margrétar Halldórsdóttur sem verður varamaður.
Verkefnastjóri velferðarsviðs kynnir framgang aðgerða í aðgerðaáætlun velferðarsviðs vegna ársins 2024.
Öldungaráð þakkar Jóhönnu Lilju Ólafsdóttur verkefnisstjóra velferðarsviðs góða kynningu á stöðu vinnu samkvæmt aðgerðaráætlun velferðarsviðs 2024.
Verkefnastjóri velferðarsviðs kynnir aðgerðaáætlun velferðarsviðs vegna ársins 2025.
Öldungaráð þakkar Jóhönnu Lilju Ólafsdóttur verkefnisstjóra velferðarsviðs góða kynningu á fyrirliggjandi aðgerðaráætlun velferðarsviðs vegna ársins 2025.
Öldungaráð telur nauðsynlegt að skoða aðgerðir til að rjúfa félagslega einangrun eldra fólks. Þekkt er að félagsleg einangrun er raunverulegt og alvarlegt vandamál í nútíma samfélögum og áhættuþáttur varðandi andlega og líkamlega heilsuskerðingu. Bent er sérstaklega á að úrræði skorti fyrir karlmenn, t.d. úrræði á borð við "Karlar í skúrum".
Öldungaráð skorar á bæjarstjórn að skoða möguleika á að koma upp úrræði á borð við "Karlar í skúrum" sem markvissa aðgerð til að rjúfa félagslega einangrun.
Á fundi sínum þann 10. febrúar sl. undir liðnum Tölulegar upplýsingar velferðarsviðs, lagði velferðar- og mannréttindaráð Kópavogsbæjar fram eftirfarandi bókun:
Velferðar- og mannréttindaráð óskar eftir að fá yfirlit yfir lengd biðtíma eftir félagslegri þjónustu: Hversu lengi hafa þeir beðið sem hafa verið lengst á biðlista eftir þjónustu velferðarsviðs?
Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs Kópavogsbæjar þann 10. mars undir liðnum, 25021243-Velferðar- og mannréttindaráð óskar eftir upplýsingum um biðlista, var lagt fram minnisblað velferðarsviðs, dags. 3. mars.
Minnisblað velferðarsviðs er hér með kynnt öldungaráði.
Í minnisblaði vegna biðlista dags. 3.3.2025 kemur fram að þjónusta við nýjan notanda fer ekki af stað fyrr en annar notandi hættir að þiggja þjónustu. Í febrúarmánuði 2025 voru 29 einstaklingar á bið eftir þjónustu og hefur biðlistinn lengst síðan.
Kópavogsbær sem sveitarfélag hefur vaxið mikið á undanförnum árum og heldur enn áfram að vaxa. Fjöldi stöðugilda í félagslegri heimaþjónustu hefur þó ekki aukist í hlutfalli við fjölgun fólks með stuðningsþarfir. Öldungaráð skorar á bæjarstjórn að forgangsraða fjármagni í þágu þjónustu við eldra fólk í samræmi við markmið um að styðja fólk til að búa sem lengst heima.
Lagðar fram til kynningar tölulegar upplýsingar um starfsemi velferðarsviðs frá september til desember 2024.
Öldungaráð þakkar fyrir kynninguna.
Jóhanna Lilja Ólafsdóttir, verkefnisstjóri velferðarsviðs vék af fundi 12:59.
Kópavogsbær fagnar 70 ára afmæli 11. maí næstkomandi og af því tilefni hefur tekið til
starfa afmælisnefnd sem óskar eftir að nefndir og ráð taki málið upp og komi tillögum
áfram til afmælisnefndar. Lagt fram minnisblað verkefnastjóra á skrifstofu
stjórnsýslusviðs dags. 18.2.25.
Lagt fram til kynningar.
Kynning á fyrirkomulagi afsláttar af fasteignagjöldum í Kópavogi.
Ingólfur Arnarson, deildarstjóri hagdeildar kynnir.
Ingólfi Arnarsyni, deildarstjóra hagdeildar er þökkuð kynning á fyrirkomulagi afsláttar af fasteignagjöldum lífeyrisþega í Kópavogi.
Ingólfur Arnarson, deildarstjóri hagdeildar vék af fundi kl. 13:18.
Kynning á þjónustu skrifstofu þjónustu og sértækrar ráðgjafar fyrir eldra fólk.
Ingibjörg Björsdóttir, félagsráðgjafi eldra fólks og Helga Ólafsdóttir iðjuþjálfi kynna þjónustu skrifstofu þjónustu og sértækrar ráðgjafar fyrir eldra fólk..
Öldungaráð þakkar góða kynningu.
Ingibjörg Björnsdóttir og Helga Ólafsdóttir véku af fundi kl. 14.28