Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Öldungaráð - 6. fundur

á Digranesvegi 1, fundarherbergi - Digranes

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - formaður
  • Birkir Jón Jónsson - aðalfulltrúi
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
  • Þórarinn Þórarinsson - aðalfulltrúi
  • Sigríður Bjarnadóttir - aðalfulltrúi
  • Sigurður Sigfússon - aðalfulltrúi

Starfsmenn

  • Amanda Karima Ólafsdóttir - Deildarstjóri frístunda- og forvarnardeildar
  • Anna Klara Georgsdóttir - starfsmaður velferðarsviðs

Ritari

  • Amanda K. Ólafsdóttir

Dagskrá fundar

01

Lýðheilsustefna: innleiðing. Heilsuefling aldraðra.

Niðurstöður viðhorfskönnunar vegna hádegisverðar í félagsmiðstöðvum og heimaþjónustu eldri borgara í Kópavogi lögð fram.

Amanda K. Ólafsdóttir deildarstjóri frístundadeildar og Anna Klara Georgsdóttir deildarstjóri öldrunarþjónustu kynna niðurstöður viðhorfskönnunar fyrir ráðinu og umræða í framhaldi um niðurstöðurnar. Halda áfram viðhorfskönnunum um gæði matarins og þjónustu. Ræddar hugmyndir um að elda á öllum stöðum, þyrfti að skoða og kostnaðargreina. Öldungaráð felur starfsmanni ráðsins að kanna það nánar.

02

Öldungaráð 2018-2019

Ákveða dagsetningu opins fundar öldungaráðs og FEBK.

Lagt fram minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga, um ný og breytt ákvæði um notendaráð á grundvelli laga sem tóku gildi 1.október 2018.

Ákveðið að halda opinn fund í mars 2019, samhliða aðalfundi FEBK.

Öldungaráð felur starfsmanni ráðsins að fylgja eftir endurskoðun á erindisbréfi öldungaráðs með tilliti til nýrra laga um notendaráð/öldungaráð í samráði við forsætisnefnd.

03

Frístundadeild-Upplýsingabæklingur eldri borgara í Kópavogi.

Upplýsingar um dreifingu á upplýsingabæklingi ætlaður eldri borgurum í Kópavogi.

Starfsmaður öldungaráðs kynnir drög að fyrirkomulagi vegna dreifingar á upplýsingabæklingi ætlaður eldri borgurum í Kópavogi. Í framhaldi sendir starfsmaður út boð og fyrirkomulag á bæjarfulltrúa, FEBK og aðra áhugasama um þegar bæklingnum verði dreift.