Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Lýðheilsustefna: innleiðing

Málsnúmer: 1710516

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3065. fundur

Frá verkefnastjóra lýðheilsumála, dags. 29. október 2021, kynning á endurskoðaðri lýðheilsustefnu.

Bæjarráð samþykkir að vísa drögum að endurskoðaðri lýðheilsustefnu í samráðsferli.

02

Menntaráð - 83. fundur

Kynning á mælaboði lýðheilsu.

Dr. Anna Elísbet Ólafsdóttir, sérfræðingur í lýðheilsumálum kynnti nýtt mælaborð lýðheilsu sem byggir á Lýðheilsustefnu bæjarins.

03

Velferðarráð - 88. fundur

Verkefnastjóri lýðheilsumála kynnir drög að mælaborði lýðheilsu

Velferðarráð þakkar góða kynningu og fagnar því að verið sé að þróa mælaborð sem hluta af innleiðingu lýðheilsustefnu.

04

Skipulagsráð - 102. fundur

Frá verkefnastjóra lýðheilsumála, dags. 28.06.2021, lögð fram umsögn um innleiðingu á mælaborði lýðheilsu.

05

Bæjarráð - 3051. fundur

Frá verkefnastjóra lýðheilsumála, dags. 28.06.2021, lögð fram umsögn um innleiðingu á mælaborði lýðheilsu.

Bæjarráð felur verkefnastjóra lýðheilsumála að fylgja málinu eftir inní aðrar nefndir og ráð sveitarfélagsins.

06

Bæjarstjórn - 1231. fundur

Frá verkefnastjóra lýðheilsumála, dags. 1. febrúar, lögð fram umsögn um notkun hressingarhælisins undir Geðræktarhús.

Tillaga 1:

Að gamla hressingarhælið fái heitið GEÐRÆKTARHÚS.

Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 7 atkvæðum og hjásetu þeirra Péturs H. Sigurðssonar, Bergljótar Kristinsdóttur, Karenar E. Halldórsdóttur og Guðmundar G. Geirdal.

Bókun:

"Undirrituð telja heppilegra að það fari fram samkeppni um nafn á húsinu meðal þeirra sem koma til með að nýta húsið, það er barna og ungmenna í Kópavogi. Félagsmiðstöðvar hafa ákveðið nafn eins og skólarnir og íþróttahúsin og því eðlilegt að þetta hús fái sérstakt nafn.

Það er betri bragur að því að þau sem eiga að nota þjónustu hússins fái tækifæri til að velja nafn á það. Það er í samræmi við barnasáttmálann og heimsmarkmiðin að gefa börnum og ungmennum tækifæri til að hafa áhrif á málefni sem þeim tengjast.

Leiða má líkum að því að nafnasamkeppni meðal barna og ungmenna mun líka vekja nauðsynlega athygli á starfseminni sem fram á að fara í húsinu."

Pétur Hrafn Sigurðsson

Bergljót Kristinsdóttir

bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar

Bókun:

"Undirrituð minnir á að það var einmitt unga fólkið okkar sem fékk tækifæri til þess að hafa áhrif á starfsemina (með rýnihópum og könnun) um það hvernig nýta eigi Geðræktarhúsið, allt í samræmi við barnasáttmálann og Heimsmarkmiðin. Hér er um að ræða mikilvægt verkefni til þess að undirstrika forgangsmarkmið lýðheilsustefnunnar."

Theódóra S. Þorsteinsdóttir

Tillaga 2:

Að fyrstu þrjú árin haldi Kópavogsbær úti starfsemi í húsinu. Að þar verði starf sem byggir á jákvæðri sálfræði (e. positive psychology) þar sem unnið er með styrkleika og jákvæða þætti mannlegrar hegðunar til að bæta líðan. Starfsemin verði metin með tilliti til árangurs að þremur árum liðnum og afstaða tekin til framhaldsins.

Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 atkvæðum

Bókun:

"Ég fagna því að Geðræktarhús fái nú tilang til að efla líðan og heilsu Kópavogsbúa. Ég er hins vegar ekki sammála þeirri hugmyndafræði og útfærslu sem hér er lögð fram. Ég hef ávalt talið að þetta húsnæði ætti að nýtast fleirum og þá sérstaklega frjálsum félagasamtökum sem halda úti mikilvægu fyrstu hjálpar starfi er varðar geðheilbrigði og treysta algerlega á skilning hins opinbera og fjárstyrkja fyrirtækja til að halda úti sínu starfi."

Karen E. Halldórsdóttir


Tillaga 3:

Að sett verði saman fagráð sem komi að skipulagningu faglegs starfs í húsinu í samstarfi við verkefnisstjóra.

Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 atkvæðum

Bókun:

"Óska eftir að tillögur verði bornar undir bæjarstjórn til umræðu"

Karen E. Halldórsdóttir

07

Bæjarráð - 3034. fundur

Frá verkefnastjóra lýðheilsumála, dags. 1. febrúar, lögð fram umsögn um notkun hressingarhælisins undir Geðræktarhús.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bókun:

"Ég fagna því að Geðræktarhús fái nú tilang til að efla líðan og heilsu Kópavogsbúa. Ég er hins vegar ekki sammála þeirri hugmyndafræði og útfærslu sem hér er lögð fram. Ég hef ávalt talið að þetta húsnæði ætti að nýtast fleirum og þá sérstaklega frjálsum félagasamtökum sem halda úti mikilvægu fyrstu hjálpar starfi er varðar geðheilbrigði og treysta algerlega á skilning hins opinbera og fjárstyrkja fyrirtækja til að halda úti sínu starfi."

Karen E. Halldórsdóttir

08

Bæjarráð - 3030. fundur

Frá verkefnastjóra lýðheilsumála, kynning á stöðu stýrihóps lýðheilsumála.

Lagt fram.

09

Bæjarráð - 3017. fundur

Frá verkefnastjóra lýðheilsumála, dags. 25. september, lögð fram tillaga um að Hressingarhælið verði Lýðheilsuhús þar sem áhersla verði lögð á fræðslu og færniþjálfun er lítur að andlegri vellíðan, ásamt samantekt frá stýrihópi lýðheilsu vegna málsins.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum tillögu um að Hressingarhælið verði Lýðheilsuhús/Geðræktarhús þar sem lögð verði áhersla á fræðslu og færniþjálfun er lýtur að andlegri vellíðan.

10

Bæjarráð - 2991. fundur

Frá verkefnastjóra lýðheilsumála, dags. 20. febrúar, lagt fram erindi þar sem lagt er til að Hressingarhælið verði tekið undir Geðræktarhús sem þjóni þeim tilgangi að vera mistöð þekkingar og þróunar úrræða til að efla andlega heilsu og vellíðan í samstarfi við fagfólk.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til frekari vinnslu bæjarstjóra.

11

Velferðarráð - 39. fundur

Lagt fram til kynningar

Velferðarráð þakkar framlagða skýrslu.

12

Öldungaráð - 6. fundur

Niðurstöður viðhorfskönnunar vegna hádegisverðar í félagsmiðstöðvum og heimaþjónustu eldri borgara í Kópavogi lögð fram.

Amanda K. Ólafsdóttir deildarstjóri frístundadeildar og Anna Klara Georgsdóttir deildarstjóri öldrunarþjónustu kynna niðurstöður viðhorfskönnunar fyrir ráðinu og umræða í framhaldi um niðurstöðurnar. Halda áfram viðhorfskönnunum um gæði matarins og þjónustu. Ræddar hugmyndir um að elda á öllum stöðum, þyrfti að skoða og kostnaðargreina. Öldungaráð felur starfsmanni ráðsins að kanna það nánar.

13

Ungmennaráð - 7. fundur

Anna Elísabet Ólafsdóttir sérfræðingur í lýðheilsumálum hjá Kópavogsbæ kynnir innleiðingu lýðheilsustefnunnar og verkefni tengt andlegri líðan ungs fólks.

Fundur settur kl. 18.08.

Ungmennaráð Kópavogs þakkar Önnu Elísabet Ólafsdóttur kærlega fyrir áhugaverða og gagnlega kynningu. Almenn umræða um lýðheilsu fólks, andlega líðan ungs fólks og verkefni í tengslum við líðan og forvarnir.

Stefán Daði Karelsson fór af fundi kl. 18.43.

Anna Elísabet Ólafsdóttir fór af fundi kl. 18.50.

14

Bæjarráð - 2915. fundur

Frá sérfræðingi lýðheilsumála, dags. 27. apríl, lögð fram stöðuskýrsla varðandi lýðheilsu í Kópavogi.

Lagt fram.

15

Bæjarráð - 2902. fundur

Anna Elísabet Ólafsdóttir, sérfræðingur í lýðheilsumálum, fer yfir framgang verkefna undir 6 meginmarkmiðum lýðheilsustefnunnar.

Lagt fram.

Bæjarráð þakkar kynninguna og lýsir mikilli ánægju með framgang verkefnisins.

16

Umhverfis- og samgöngunefnd - 93. fundur

Sérfræðingur í lýðheilsumálum kynnir innleiðingu Lýðheilsustefnu Kópavogsbæjar.

Lagt fram og kynnt.