Skipulags- og umhverfisráð - 28. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Hjördís Ýr Johnson - formaður
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalfulltrúi
- Kristinn Dagur Gissurarson - varaformaður
- Gunnar Sær Ragnarsson - aðalfulltrúi
- Helga Jónsdóttir - aðalfulltrúi
- Leó Snær Pétursson - aðalfulltrúi
- Hákon Gunnarsson - aðalfulltrúi
- Indriði Ingi Stefánsson - aðalmaðurBoðaði forföllIndriði Ingi Stefánsson - varamaðurSat fundinn í staðinn
Starfsmenn
- Auður Dagný Kristinsdóttir - skipulagsfulltrúi
- Ásthildur Helgadóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Andrea Kristinsdóttir - verkefnastjóri
- Karlotta Helgadóttir - fulltrúi skipulagsdeildar
- Harri Ormarsson - lögfræðingur
Ritari
- Karlotta Helgadóttir
Dagskrá fundar
2603039F - Skipulags- og umhverfisráð - 27. fundur frá 20.04.2026.
25111111 - Kópavogsbraut 20. Byggingarleyfisumsókn.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Lagt fram að nýju erindi Seatrips ehf. dags. 30. ágúst 2023 þar sem óskað var eftir samstarfi við hafnarstjórn Kópavogsbæjar varðandi aðstöðu og þjónustu við Kópavogshöfn. Hafnarstjórn vísaði erindinu til skipulagsfulltrúa. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 27. apríl 2026 var erindið lagt fram og var því vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. apríl 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. apríl 2026 samþykkt.
Lögð fram að nýju umsókn Jakobs Emils Líndal arkitekts dags. 3. febrúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 9-11 við Dalsmára um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst 3.780 m² lóðarstækkun til norðurs og 4.000 m² nýbygging á tveimur hæðum sem tengist núverandi húsnæði á lóð með tengigangi. Lóðarstækkunin fer að hluta til yfir á svæði með landnotkun skilgreinda í aðalskipulagi sem opið svæði, OP-221, en er að öðru leiti innan íþróttasvæðis, ÍÞ-4. Tillagan leggur undir sig núverandi útitennisvelli og útivistarsvæði. Uppdrættir dags. 3. mars 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 25. mars 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. apríl 2026.
Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 17. apríl 2026. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Lögð fram fyrirspurn varabæjarfulltrúa Hákonar Gunnarssonar dags. 14. apríl 2026 um niðurrif og framkvæmdir á Fannborgarreit. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 20. apríl 2026 var fyrirspurninni vísað til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs. Einnig er lagt fram svarbréf frá skrifstofustjóra umhverfissviðs dags. 14. apríl 2026.
Lagt fram.
Lagt fram erindi varabæjarfulltrúa Bergs Þorra Benjamínssonar dags. 22. apríl 2026 um götuhreinsun í Kópavogi.
Vísað til umsagnar umhverfissviðs.