Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Skipulagsnefnd - 1174. fundur

Fannborg 6, 2.hæð

Mætt til fundar

Ritari

  • Guðmundur Gunnarsson

Dagskrá fundar

Almenn erindi

01

Boðaþing 1 - 3, breytt deiliskipulag.

Á fundi skipulagsnefndar 13. október 2009 er lagt fram erindi THG arkitekta dags. 10. október 2009 fh. lóðarhafa nr. 1-3, 10-12, 14-16 og 18-20. Erindið varðar breytingu á deiliskipulagi (7. ágúst 2009). Í Boðaþingi 1-3, 14-16 og 18-20 verði íbúðum fjölgað um 6 í hverju húsi, úr 28 í 34 í hverju húsi, alls 18 íbúðir. Byggingarmagn verður óbreytt. 18 íbúðir stærri en 80 m² og 16 íbúðir minni en 80 m². Bílastæðum fjölgi um alls 12, úr 48 í 60.$line$Í Boðaþingi 10-12 verði íbúðum fjölgað um 6, úr 28 í 34. Byggingarmagn verður óbreytt. 28 íbúðir stærri en 80 m² og 6 íbúðir minni en 80 m². Bílastæðum fjölgi um 14, úr 48 í 62.$line$Samtals fjölgar íbúðum í húsunum fjórum um 24 og bílastæðum fjölgi við húsin fjögur um 26. $line$Alls eru á deiliskipulagi þessara lóða 112 íbúðir, en verða 136 skv. tillögunni. $line$Alls eru á deiliskipulagi þessara lóða 192 bílastæði, en verða 218 skv. tillögunni.$line$Meðfylgjandi: Skýringaruppdráttur dags. 10. okt. ´09 í mkv. 1:1000.$line$Skipulagsnefnd samþykkir að fela lóðarhafa að vinna tillögu að breyttu deiliskipulagi og leggja fyrir næsta fund skipulagsnefndar.$line$Á fundi skipulagsnefndar 3. nóvember 2009 er erindið lagt fram að nýju ásamt deiliskipulagstillögu.$line$Skipulagsnefnd samþykkir að tillagan verði auglýst sbr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarráðs.$line$Á fundi bæjarstjórnar 10. nóvember 2009 er tillagan samþykkt og skipulagsstjóra falið að auglýsa hana sbr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.$line$Tillagan var auglýst 27. nóvember til 28. desember 2009, með athugasemdafresti til 12. janúar 2010. Engar athugasemdir bárust.$line$Á fundi skipulagsnefndar 19. janúar 2010 er erindið lagt fram á ný.$line$

<DIV&gt;<DIV&gt;Skipulagsnefnd samþykkir erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarráðs.</DIV&gt;</DIV&gt;

Almenn erindi

02

Austurkór 161, breytt deiliskipulag 2. mgr. 26. gr. laga 73/97.

Á fundi skipulagsnefndar 3. nóvember 2009 er lagt fram erindi Jónasar Þórðarsonar byggingarfræðings fh. lóðarhafa nr. 161 við Austurkór. Í erindi felst að óskað er eftir breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar. Á norður- vestur og suðurhlið verði byggt út fyrir ytri byggingarreit, sem nemur frá 0,5 til 1,5 metrum. Kóti bílageymslu verði 0,15 m lægri en kóti húss. Mænishæð húss fari 0,11 m upp fyrir byggingarreit. Tillagan gerir ráð fyrir að heildarstærð húss verði 261,8 m² en skilmálar gera ráð fyrir 250 m².$line$Meðfylgjandi: Skýringaruppdrættir dags. okt. ´09 í mkv. 1:100$line$Skipulagsnefnd samþykkir að senda erindið í kynningu til lóðarhafa Austurkór 149, 151, 153, 155, 157, 159, 163 og 165. Mænishæð fari ekki upp fyrir hámarkshæð skv. skipulagsskilmálum.$line$Kynning fór fram 17. nóvember til 22. desember 2009. Engar athugasemdir bárust.$line$Á fundi skipulagsnefndar 19. janúar 2010 er erindið lagt fram að nýju.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Skipulagsnefnd samþykkir erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarráðs.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

Almenn erindi

03

Hávaðakort og kort yfir stóra vegi.

Á fundi skipulagsnefndar 19. janúar 2010 er lagt fram erindi Umhverfisstofnunar dags. 12. janúar 2010. Erindið varðar gerð hávaðakorts og skráningu yfir stóra vegi, sbr. reglugerð nr. 1000/2005.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Skipulagsnefnd felur bæjarskipulagi að gera umsögn um erindið fyrir næsta fund skipulagsnefndar.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

Almenn erindi

04

Efstihjalli 3, athugasemd vegna breytinga.

Á fundi skipulagsnefndar 19. janúar 2009 er lagt fram erindi íbúa Efstahjalla 3, þar sem kvartað er vegna breytinga á húsnæði. Í húsinu eru skv. samþykktri byggingarnefndarteikningu 6 íbúðir, geymslur, barnavagna- og reiðhjólageymsa, þvottahús, þurrkherbergi og gufubað. Geymslu í kjallara hefur verið breytt í íbúðarrými. Í erindinu er óskað aðstoðar bæjarfélagsins.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Frestað. Skipulagsnefnd samþykkir að óska eftir umsögn byggingarfulltrúa fyrir næsta fund skipulagsnefndar.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;