Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Hávaðakort og kort yfir stóra vegi.

Málsnúmer: 1001088

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2694. fundur

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir Aðgerðaáætlun gegn hávaða og vísar skýrslunni til bæjarstjórnar til staðfestingar.

Bæjarráð staðfestir afgreiðslu umhverfis- og samgöngunefndar.

02

Umhverfis- og samgöngunefnd - 37. fundur

Lögð er fram skýrslan Aðgerðaáætlun gegn hávaða. Einnig eru lagðar fram athugasemdir sem bárust frá íbúum á kynningartíma.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir <EM>Aðgerðaáætlun gegn hávaða</EM> og vísar skýrslunni til samþykktar hjá bæjarstjórn.

03

Skipulagsnefnd - 1226. fundur

Lögð fram að nýju drög að aðgerðaráætlun dags. í apríl 2013.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við framlagða aðgerðaráætlun. Vísað í frekari vinnu við gerð hverfisskipulags.

04

Bæjarráð - 2687. fundur

Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar dags. 06.05.2013 var málið Hávaðakort og kort yfir stóra vegi tekið fyrir.

Lagt fram. Bæjarráð óskar eftir umfjöllun stjórnar SSH um skildgreint hlutverk Vegaverðarinnar gagnvart sveitarfélögum í skjalinu.

05

Skipulagsnefnd - 1225. fundur

Kynnt drög að aðgerðaráætlun dags. apríl 2013.$line$$line$Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 6.5.2013 var óskað eftir umsögn skipulagsnefndar um aðgerðaráætlunina.

Lagt fram og kynnt. Skipulags- og byggingardeild falið að vinna umsögn um aðgerðaráætlunina.

06

Umhverfis- og samgöngunefnd - 34. fundur

Sviðsstjóri kynnir drög að aðgerðaráætlun dags. apríl 2013.

Lagt fram og kynnt. Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir að tillagan verði kynnt, jafnframt óskar nefndin eftir umsögn skipulagsnefndar.

07

Umhverfis- og samgöngunefnd - 31. fundur

Sviðsstjóri gerir aðgerðaáætluninni nánari skil.

Sviðsstjóri kynnti framlagt erindi. Frestað.

08

Umhverfis- og samgöngunefnd - 27. fundur

Umhverfis- og samgöngunefnd hefur fjallað um gerð hávaðakorts og korts yfir stóra vegi.Sviðsstjóri gerði grein fyrir stöðu vinnu við gerð kortsins.Lagt fram.

09

Umhverfis- og samgöngunefnd - 26. fundur

Umhverfis- og samgöngunefnd hefur fjallað um gerð hávaðakorts og korts yfir stóra vegi. Sviðsstjóri gerði grein fyrir stöðu vinnu við gerð kortsins.

10

Bæjarráð - 2647. fundur

Sviðsstjóri umhverfissviðs kynnti málið fyrir framkvæmdaráði 27. júní og vísaði framkvæmdaráð málinu til bæjarráðs. Jafnframt leggur framkvæmdaráð til við bæjarráð að málinu verði vísað til SSH til umfjöllunar.

Bæjarráð vísar málinu til stjórnar SSH.

11

Framkvæmdaráð - 34. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs. Lagt fram.

Sviðsstjóri umhverfissviðs kynnti málið. Framkvæmdaráð vísar málinu til bæjarráðs. Framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð að málinu verði vísað til SSH til umfjöllunar.

12

Umhverfis- og samgöngunefnd - 22. fundur

Staða vinnu við gerð hávaðakorta kynnt.

13

Bæjarráð - 2637. fundur

Frá Vegagerðinni, dags. 4/4, óskað eftir formlegu samstarfi við Kópavogsbæ um kortlagningu umferðarhávaða og gerð aðgerðaáætlana á höfuðborgarsvæðinu.

Bæjarráð vísar erindinu til umhverfis- og samgöngunefndar til úrvinnslu.

14

Umhverfis- og samgöngunefnd - 16. fundur

Lögð fram bréf frá Umhverfisstofnun dags. 12. janúar 2010, 17. nóvember 2011 og 10. febrúar 2012 þar sem óskað er eftir upplýsingum um kortlagningu hávaða við vegi og áætlun um mótvægisaðgerðir. Einnig eru lögð fram bréf frá skipulags- og byggingardeild Kópavogs dags. 16. febrúar 2010 og 3. janúar 2012.

Umhverfis- og samgöngunefnd felur starfsmönnum umhverfissviðs að svara bréfi Umhverfisstofnunar.

15

Skipulagsnefnd - 1199. fundur

Lagt fram erindi Umhverfisstofnunar dags. 17. nóvember 2011 og varðar kortlagningu hávaða og gerð aðgerðaráætlana skv. reglugerð 1000/2005.

Lagt fram. Skipulagsnefnd bendir á að til er yfirlit yfir útreikninga á hljóðstigi (kortlagning hávaða) 1996 - 2006 unnið af Almennu verkfræðistofunni. Í kjölfarið var gerð aðgerðaráætlun 2002 og er unnið samkvæmt henni.

16

Skipulagsnefnd - 1175. fundur

Á fundi skipulagsnefndar 19. janúar 2010 er lagt fram erindi Umhverfisstofnunar dags. 12. janúar 2010. Erindið varðar gerð hávaðakorts og skráningu yfir stóra vegi(aðalgatnakerfi), sbr. reglugerð nr. 1000/2005.$line$Skipulagsnefnd felur bæjarskipulagi að gera umsögn um erindið fyrir næsta fund skipulagsnefndar.$line$Á fundi skipulagsnefndar 16. febrúar 2010 er erindið lagt fram að nýju ásamt umsögn dags. 12. febrúar 2010.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Lagt fram til kynningar.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

17

Skipulagsnefnd - 1174. fundur

Á fundi skipulagsnefndar 19. janúar 2010 er lagt fram erindi Umhverfisstofnunar dags. 12. janúar 2010. Erindið varðar gerð hávaðakorts og skráningu yfir stóra vegi, sbr. reglugerð nr. 1000/2005.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Skipulagsnefnd felur bæjarskipulagi að gera umsögn um erindið fyrir næsta fund skipulagsnefndar.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;