Skólanefnd - 41. fundur
í fundarsal Fannborg 2, 2. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Rannveig H Ásgeirsdóttir - formaður
- Helgi Magnússon - aðalfulltrúi
- Alexander Arnarson - aðalfulltrúi
- Hreggviður Norðdahl - aðalfulltrúi
- Þór Heiðar Ásgeirsson - aðalfulltrúi
- Sigurður Haukur Gíslason - kennarafulltrúi
- Guðrún Soffía Jónasdóttir - fulltrúi skólastjóra
- Marta Kristín Sigurjónsdóttir - vara foreldrafulltrúi
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
- Ragnheiður Hermannsdóttir - starfsmaður nefndar
Ritari
- Ragnheiður Hermannsdóttir
Dagskrá fundar
Kynning á hlutverki sveitarstjórna við mat og eftirlit með skólastarfi.
Deildarstjóri kynnti ytra- og innra mat í grunnskólum.
Nýtt upplýsinga- og greiningarkerfi sem Samband íslenskra sveitarfélaga er að þróa. Tilgangur þess er m.a. að sveitarstjórnir geti betur sinnt lögboðinni eftirlitsskyldu sinni.
Skólavog kynnt.
Erindi frá foreldrum lagt fram.
Skólanefnd þakkar foreldrum í Hörðuvallaskóla bréfið og ábendingar. Fylgst er náið með þörfum skólans vegna fjölgunar nemenda og verið er að leita lausna.
Kynning á þeirri vinnu sem þegar hefur farið fram við endurskoðun skólastefnu bæjarins.
Þór Ásgeirsson tilnefndur sem fjórði fulltrúi í vinnuhóp um skólastefnu.
Minnisblað grunnskóladeildar lagt fram.
Skólanefnd tilnefnir Helga Magnússon í vinnuhóp menntasviðs um upplýsingatækni í grunnskólum. Umræður um skipan starfshóps.
Bæjarráð vísar erindinu til skólanefndar til afgreiðslu.
Skólanefnd felur skólastjórum grunnskólanna í samstarfi við leikskólastjóra að vinna að samræmingu skipulagsdaga í leik- og grunnskólum fyrir skólaárið 2012 - 2013. Nauðsynlegt er að tveir eða fleiri grunnskólar starfi saman að samræmingu skipulagsdaga þar sem leikskólar tengjast fleiri en einu skólahverfi. Skólanefnd gefur grunnskólunum frest til að skila skóladagatali til 7. maí 2012.
Til upplýsingar.
Erindi lagt fram og rætt.
Fulltrúi Samfylkingar lagði fram ósk um að umræða færi fram um skipulag nefndarfunda.
Skipulag funda rætt með hliðsjón af erindisbréfi. Ákveðið að fundarmenn svari fundarboði.