Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Skólanefnd - 54. fundur

í fundarsal Fannborg 2, 2. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Bragi Þór Thoroddsen - aðalfulltrúi
  • Helgi Magnússon - aðalfulltrúi
  • Ásta Skæringsdóttir - aðalfulltrúi
  • Sigurður Sigurbjörnsson - varafulltrúi
  • Þór Heiðar Ásgeirsson - aðalfulltrúi
  • Erla Karlsdóttir - aðalfulltrúi
  • Lára Jóna Þorsteinsdóttir - aðalfulltrúi
  • Sigurður Haukur Gíslason - kennarafulltrúi
  • Marta Kristín Sigurjónsdóttir - foreldrafulltrúi
  • Guðmundur O Ásmundsson - fulltrúi skólastjóra
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
  • Ragnheiður Hermannsdóttir - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Ragnheiður Hermannsdóttir

Dagskrá fundar

01

Húsnæðismál Hörðuvallaskóla

Staða máls kynnt.

Skólanefnd mælir með tillögu 2 á minnisblaði frá umhverfis- og menntasviði þar sem gert er ráð fyrir viðbyggingu við skólann haustið 2014 og lausum kennslustofum.

02

Skólastefna Kópavogs

Drög að framkvæmdaráætlun lögð fram.

Þór Ásgeirsson óskaði eftir fundarhléi kl. 18:10.Fundur hófst aftur kl. 18:23.Pólitískt kjörnir fulltrúar vinni framkvæmdaráætlun með starfsmönnum grunnskóladeildar. Deildarstjóri grunnskóladeildar boðar fund. Vinnu við framkvæmdaráætlun verði lokið fyrir páska.

03

Skóladagatal - Samræming starfsdaga leik- og grunnskóla

Lagt fram svar við fyrirspurn kennarafulltrúa á fundi skólanefndar þann 14. janúar 2013.

Erla Karlsdóttir vék af fundi kl. 19:00. Vísað er til minnisblaðs frá 4.02.2013 um viðhorfskönnun vegna samræmingar skóladagatals leik- og grunnskóla.Áheyrnafulltrúi kennara leggur til að spurningarnar verði tvær og kanni með þeim hætti dagvistunarþörf foreldra nánar á skipulagsdögum í leik- og grunnskólum í Kópavogi. Tillaga borin undir atkvæði. Meðmæltir voru tveir og andvígir voru þrír. Formaður skólanefndar leggur til að unnið verði í samræmi við minnisblað. Meðmæltir voru fimm.

04

Starfsáætlun grunnskóla 2013 - 2014

Minnisblað um skóladagatal 2013 - 2014, lagt fram.

Skólanefnd samþykkir tillögu skólastjóra að dagsetningum á skólabyrjun og sameiginlegum skipulagsdegi grunnskóla Kópavogs. Einnig samþykkir nefndin dagsetningar á vetrarfríum með fyrirvara vegna viðhorfskönnunar meðal foreldra.

05

Viðurkenningar Skólanefndar Kópavogs

Tillaga lögð fram.

Marta Kristín Sigurjónsdóttir vék af fundi kl. 19:35. Skólanefnd samþykkir tillöguna.

06

Upplýsingatækni í grunnskólum

Framkvæmdaráætlun stefnu um upplýsingatækni lögð fram til kynningar.

Lagt fyrir og kynnt.

07

Waldorfskólinn

Lagt fram svar við fyrirspurn um aðkomu bæjarins að málefnum skólans frá fundi nefndarinnar 3/12 2012.

Málið rætt.