Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Umhverfis- og samgöngunefnd - 41. fundur

í Fannborg 6, fundarherbergi 2. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Margrét Björnsdóttir - aðalfulltrúi
  • Margrét Júlía Rafnsdóttir - aðalfulltrúi
  • Helgi Jóhannesson - aðalmaður
  • Steingrímur Hauksson
  • Kristján Matthíasson - aðalfulltrúi
  • Hreiðar Oddsson - aðalmaður
  • Tryggvi Magnús Þórðarson - áheyrnarfulltrúi
  • Sólveig Helga Jóhannsdóttir - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Sólveig Helga Jóhannsdóttir

Dagskrá fundar

01

Euro RAP, Ólafur Guðmundsson

Ólafur Guðmundsson frá Euro RAP fer yfir umferðaröryggi.

Umhverfis- og samgöngunefnd þakkar Ólafi Guðmundssyni fyrir góða kynningu.

02

Fífulind

Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar þann 23.09.2013 var málinu frestað. Umhverfissvið hefur skoðað málið nánar og kynnir hugmynd að staðsetningu.

Samkvæmt umferðarskipulagi Kópavogs er gert ráð fyrir gangbraut og hraðahindrun í götunni. Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir staðsetningu umhverfissviðs um gangbraut og hraðahindrun í Fífulind.

03

Kambavegur, umferðaröryggi

Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar, dags. 23.09.2013, var málinu frestað. Málið er tekið upp aftur og kynnir umhverfissvið staðsetningu á gangbraut á Kambavegi.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlagða tillögu og vill með þessu bæta umferðaröryggi á gönguleiðum skólabarna og vísar málinu til bæjarráðs.

04

Skólagerði, bílastæði

Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar, dags. 23.09.2013, var málinu frestað og er nú tekið upp að nýju. Lögð er fram kostnaðaráætlun.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlagðar hugmyndir um breytingar í Skólagerði. Málinu er vísað til afgreiðslu bæjarráðs.

05

Göngu- og hjólastígar.

Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar, dags. 24.06.2013, var umhverfissviði falið að vinna áfram í málinu. Lagt er fram minnisblað umhverfissviðs.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir að unnin verði göngu- og hjólastíga áætlun til 5 ára.

06

Reykjavíkurflugvöllur, ónæði.

Borist hefur erindi frá íbúa, dags. 22.08.2013, þar sem spurt er um Reykjavíkurflugvöll og flugumferð.

Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfisfulltrúa að óska eftir upplýsingum frá Isavia.

07

Viðbragðsáætlun vegna mengunar. Tillaga frá Margréti Björnsdóttur, Ómari Stefánssyni og Rannveigu Ásgeirsdóttur.

Á fundi bæjarráðs, dags. 26.09.2013, var eftirfarandi bókað: $line$Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Í viðbragðsáætlun um hreinsun á læk segir: "Ef mengunarslys er smávægilegt þá hreinsar lækurinn sig sjálfur".$line$Óska því eftir að umhverfisráð skýri betur hvernig metið verði stærð mengunarslysa. $line$Það er mitt mat að ef brugðist hefði verið við í Reykjavík þegar settjörnin fylltist, með réttum aðferðum, þá hefði lækurinn ekki verið hvítur í þessa þrjá daga. Eins væri auðvelt að hreinsa upp litlar brákir.$line$Ómar Stefánsson"$line$Bæjarráð óskar eftir að umhverfis- og samgöngunefnd svari fyrirgreindri fyrirspurn og frestar afgreiðslu.

Það er í verkahring viðbragðsaðila að meta umfang mengunar og fyrstu aðgerðir á slysstað.
Kópavogslækur er vaktaður 3 sinnum á ári af HHK. Niðurstöður mælinganna má finna á heimasíðu HHK. Uppfærð viðbragðsáætlun er lögð fram og henni vísað til bæjarráðs til samþykktar.

08

Grenndargámastöðvar í Kópavogi

Á fundi bæjarstjórnar, dags. 8.10.2013, var eftirfarandi bókað: $line$Ómar Stefánsson lagði til að lið 9, mál nr. 1309346, verði vísað að nýju til umhverfis- og samgöngunefndar.$line$Bæjarstjórn samþykkir tillögu Ómars Stefánssonar með níu atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi sat hjá við afgreiðslu málsins.$line$$line$$line$

Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að skoða málið nánar.

09

Erindi um umgengni og ástand Auðbrekku

Á fundi bæjarráðs þann 26.09.2013 var málinu vísað til sviðsstjóra umhverfissviðs og umhverfis- og samgöngunefndar til úrvinnslu. Lögð eru fram gögn frá Hreint ehf., dags. 16.09.2013, þar sem óskað er eftir að Kópavogsbær sjái til þess að gerðar verði úrbætur á slæmri umgengni við Auðbrekku. Einnig er lagt fram minnisblað umhverfissviðs.

Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði og HHK að fylgja málinu eftir og að gripið verði til viðeigandi aðgerða ef ekki verði brugðist við.

10

Ályktun aðalfundar Skógræktarfélags Íslands 2013

Lagt er fram erindi frá Skógræktarfélagi Íslands, dags. 25.09.2013, um ályktun aðalfundar félagsins þar sem skorað er á sveitarfélög og ríki að halda áfram framkvæmd og fjármögnun á gerð Græna stígsins ofan höfuðborgarsvæðisins allt frá Esjuhlíðum í norðri til Undirhlíða í suðri.

Kynnt.

11

Vatnsveita Kópavogs

Lagt er fram bréf til Orkustofnunar, dags. 1.10.2013, ásamt skýrslu frá Vatnaskil, dags. október 2013.

Kynnt.

12

Ársfundur Umhverfisstofnunar og náttúruverndarnefnda sveitarfélaga 2013.

Lagt er fram bréf frá Umhverfisstofnun, dags. 24.09.2013, varðandi ársfund UST og náttúruverndarnefnda sveitarfélaga 2013.

Kynnt.