Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Grenndargámar í Kópavogi

Málsnúmer: 1309346

Ferill máls

01

Umhverfis- og samgöngunefnd - 97. fundur

Formaður Umhverfis- og samgöngunefndar óskar efir kynningu á núverandi fyrirkomulagi grenndargámastöðvar í Kópavogi.

Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að endurskoða staðsetningu grenndargáma með hliðsjón að vera á fjölfarnari stöðum en þeir eru staðsettir í dag s.s. við verslunarkjarna. Hirðuflokkar grenndargámastöðva verði samhæfðir við núverandi meðhöndlun heimilisúrgangs í sveitarfélaginu ásamt málmum, minniháttar raftækjum, batteríum, vefnaði og skilagjaldskyldum umbúðum.

Þjónustustig verði aukið með því að fjölga hirðuflokkum á hverri stöð.

02

Bæjarráð - 2744. fundur

Lagt fram minnisblað varðandi aðlögun á grenndargámastöðvum í samræmi við landsáætlun um meðhöndlun úrgangs 2013 - 2024 og frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs.$line$$line$Samþykkt. Umhverfis- og samgöngunefnd vísar erindinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar til afgreiðslu og gerðar næstu fjárhagsáætlunar fyrir 2015.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

03

Umhverfis- og samgöngunefnd - 54. fundur

Lagt fram minnisblað varðandi aðlögun á grenndargámastöðvum í samræmi við landsáætlun um meðhöndlun úrgangs 2013 - 2024 og frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs.

Samþykkt. Umhverfis- og samgöngunefnd vísar erindinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar til afgreiðslu og gerðar næstu fjárhagsáætlunar fyrir 2015. Umhverfis- og samgöngunefnd óskar eftir umsögn frá Öryrkjabandalaginu varðandi útfærslu á sértækri söfnun á flokkuðu sorpi.

04

Umhverfis- og samgöngunefnd - 44. fundur

Farið yfir stöðu grenndargámastöðva í Kópavogi.$line$Lögð er fram auglýsing, samantekt um útfærslu á grenndargámastöðvum og minnisblað frá fundi 18.12.2013

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir að fækka pappírsgámum á grenndargámastöðvum og að auglýsing verði send á fyrirtæki í sveitarfélaginu.

05

Umhverfis- og samgöngunefnd - 42. fundur

Á fundi bæjarstjórnar, dags. 22.10.2013, lagði Ómar Stefánsson til að málinu yrði vísað til umhverfis- og samgöngunefndar til úrvinnslu. $line$Deildarstjóri framkvæmdadeildar, Stefán L. Stefánsson, fer yfir flokkun og grenndargáma í bænum.

Umhverfis- og samgöngunefnd þakkar Stefáni L. Stefánssyni fyrir yfirferðina og felur umhverfissviði að vinna áfram í málinu.

06

Bæjarstjórn - 1084. fundur

Mál sem ágreiningur var um í bæjarráði 17. október. Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 15. október. Þegar ákveðið var að hafa pappírstunnur við öll heimili bæjarins á sínum tíma var gert ráð fyrir því að hætt yrði að nota pappírsgáma á grenndargámastöðvum.$line$$line$Lagt er til við bæjarráð að blaðagámar á grenndargámastöðvum verði fjarlægðir 1. desember næstkomandi. $line$$line$Vísað er í bókun umhverfis- og samgöngunefndar frá 23.09.2013.$line$$line$1309346 - Grenndargámastöðvar í Kópavogi $line$Lögð er fram skýrsla um úttekt á grenndargámastöðvum í Kópavogi og minnisblað frá umhverfisfulltrúa. $line$ $line$Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir að pappírsgámar verði fjarlægðir á grenndargámastöðvum í bænum þar sem bláar pappírstunnur eru komnar við öll heimili bæjarins. $line$$line$Enn fremur er vísað í tölvupóst frá Ásmundi Reykdal, rekstrarstjóra endurvinnslustöðva dags. 24.04.2013, þar sem tekið er fram að núverandi kerfi ljúki 28. febrúar 2014 og óskað eftir svörum við spurningum sem lagðar eru fyrir. $line$Í svörum frá deildarstjóra framkvæmdadeildar varðandi þennan tölvupóst var því svarað að stefnt væri að því að hætta söfnun á pappír á grenndargámastöðvum í Kópavogi. $line$

Ómar Stefánsson lagði til að málinu verði vísað til umhverfis- og samgöngunefndar til úrvinnslu. Bæjarstjórn samþykkir tillögu Ómars Stefánssonar einróma.

07

Bæjarráð - 2704. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 15. október. Þegar ákveðið var að hafa pappírstunnur við öll heimili bæjarins á sínum tíma var gert ráð fyrir því að hætt yrði að nota pappírsgáma á grenndargámastöðvum.$line$$line$Lagt er til við bæjarráð að blaðagámar á grenndargámastöðvum verði fjarlægðir 1. desember næstkomandi. $line$$line$Vísað er í bókun umhverfis- og samgöngunefndar frá 23.09.2013.$line$$line$1309346 - Grenndargámastöðvar í Kópavogi $line$Lögð er fram skýrsla um úttekt á grenndargámastöðvum í Kópavogi og minnisblað frá umhverfisfulltrúa. $line$ $line$Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir að pappírsgámar verði fjarlægðir á grenndargámastöðvum í bænum þar sem bláar pappírstunnur eru komnar við öll heimili bæjarins. $line$$line$Enn fremur er vísað í tölvupóst frá Ásmundi Reykdal, rekstrarstjóra endurvinnslustöðva dags. 24.04.2013, þar sem tekið er fram að núverandi kerfi ljúki 28. febrúar 2014 og óskað eftir svörum við spurningum sem lagðar eru fyrir. $line$Í svörum frá deildarstjóra framkvæmdadeildar varðandi þennan tölvupóst var því svarað að stefnt væri að því að hætta söfnun á pappír á grenndargámastöðvum í Kópavogi. $line$

Bæjarráð samþykkir tillöguna með tveimur atkvæðum gegn einu. Tveir bæjarfulltrúar sátu hjá við afgreiðslu málsinsHjálmar Hjálmarsson lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Tel rétt að við nýtum okkur umræddan samningstíma.</EM><EM>Hjálmar Hjálmarsson"</EM>Sviðsstjóri umhverfissviðs og deildarstjóri framkvæmdadeildar sátu fundinn undir þessum lið.

08

Umhverfis- og samgöngunefnd - 41. fundur

Á fundi bæjarstjórnar, dags. 8.10.2013, var eftirfarandi bókað: $line$Ómar Stefánsson lagði til að lið 9, mál nr. 1309346, verði vísað að nýju til umhverfis- og samgöngunefndar.$line$Bæjarstjórn samþykkir tillögu Ómars Stefánssonar með níu atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi sat hjá við afgreiðslu málsins.$line$$line$$line$

Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að skoða málið nánar.

09

Umhverfis- og samgöngunefnd - 40. fundur

Lögð er fram skýrsla um úttekt á grenndargámastöðvum í Kópavogi og minnisblað frá umhverfisfulltrúa.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir að pappírsgámar verði fjarlægðir á grenndargámastöðvum í bænum þar sem bláar pappírstunnur eru komnar við öll heimili bæjarins.