Umhverfis- og samgöngunefnd - 33. fundur
í Fannborg 6, fundarherbergi 2. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Margrét Júlía Rafnsdóttir - aðalfulltrúi
- Helgi Jóhannesson - aðalmaður
- Steingrímur Hauksson - sviðsstjóri skipulags- umhverfissviðs
- Kristján Matthíasson - aðalfulltrúi
- Hreiðar Oddsson - aðalmaður
- Margrét Björnsdóttir - aðalfulltrúi
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir - starfsmaður nefndar
- Birgir Hlynur Sigurðsson - skipulagsstjóri
Ritari
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir
Dagskrá fundar
Á 32. fundi umhverfis- og samgöngunefndar, dags. 8. apríl 2013, var málinu frestað vegna upplýsinga sem vantaði frá Náttúrufræðistofu Kópavogs. Gögnin hafa borist og því er málið tekið upp aftur.
Umhverfis- og samgöngunefnd tekur undir mikilvægi fuglatalningar í landi Kópavogs og samþykkir að hafin verði fuglatalning í voginum Kópavogur.
Lögð fram samantekt skipulagsstjóra um framkomnar athugasemdir og ábendingar lögboðinna aðila og annarra hagsmunaaðila um Aðalskipulag Kópavogs 2012-2024 dags. 12. apríl. 2013.$line$Þá lögð fram tillaga að Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024, dags. 12. apríl 2013, greinargerð, umhverfismat, þéttbýlisuppdráttur í mkv. 1:10.000 og sveitarfélagsuppdráttur í mkv. 1:50.000.$line$
Skipulagsstjóri gerir grein fyrir málinu. Umhverfis- og samgöngunefnd gerir ekki athugasemd við að framlögð tillaga að Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024, dags. 12. apríl 2013, greinargerð, umhverfismat, þéttbýlisuppdráttur í mkv. 1:10.000 og sveitarfélagsuppdrátt í mkv. 1:50.000 verði kynnt í samræmi við 31. gr. laga nr. 123/2010 og 7. gr. laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana. Umhverfis- og samgöngunefnd áskilur sér rétt til að koma með athugasemdir á seinni stigum málsins.