Fuglavöktun í Kópavogi
Málsnúmer: 1304003
Ferill máls
01
Umhverfis- og samgöngunefnd - 60. fundur
Lögð fram samantekt á fuglavöktun í Kópavogi síðan 2012.
Lagt fram og kynnt. Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma að fela umhverfissviði að funda með forsvarsmönnum Náttúrufræðistofu Kópavogs um vöktun og rannsóknir á náttúru Kópavogs.
02
Umhverfis- og samgöngunefnd - 45. fundur
Lögð fram skýrsla um fuglalíf í Kópavogi 2013 af Jóhanni Óla Hilmarssyni og Ólafi Einarssyni.
Málið kynnt og umhverfis- og samgöngunefnd þakkar Jóhanni Óla Hilmarssyni og Ólafi Einarssyni fyrir kynninguna.
03
Umhverfis- og samgöngunefnd - 33. fundur
Á 32. fundi umhverfis- og samgöngunefndar, dags. 8. apríl 2013, var málinu frestað vegna upplýsinga sem vantaði frá Náttúrufræðistofu Kópavogs. Gögnin hafa borist og því er málið tekið upp aftur.
Umhverfis- og samgöngunefnd tekur undir mikilvægi fuglatalningar í landi Kópavogs og samþykkir að hafin verði fuglatalning í voginum Kópavogur.
04
Umhverfis- og samgöngunefnd - 32. fundur
Borist hefur erindi, dags. 03.03.2013, frá Jóhanni Óla Hilmarssyni og Ólafi Einarssyni varðandi talningu á fuglum í Kópavogi árið 2013.
Frestað.