Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Umhverfis- og samgöngunefnd - 24. fundur

í Fannborg 2, fundarherbergi 3. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Margrét Júlía Rafnsdóttir - aðalfulltrúi
  • Helgi Jóhannesson - aðalmaður
  • Steingrímur Hauksson
  • Kristján Matthíasson - aðalfulltrúi
  • Hreiðar Oddsson - aðalmaður
  • Margrét Björnsdóttir - aðalfulltrúi
  • Gylfi Sigurðsson

Ritari

  • Hólmfríður Þorsteinsdóttir

Tryggvi Magnús Þórðarson tilkynnti forföll.

Dagskrá fundar

01

Þríhnúkagígur - aðgengi, aðkoma og þjónustubygging.

Frummatsskýrsla um aðgengi að Þríhnúkagíg lögð fram. Frestur til athugasemda rennur út 21. september 2012. Einnig óskar bæjarráð á fundi 23. ágúst eftir umsögn nefndarinnar varðandi erindi dags. 20. ágúst um afmörkun gönguleiða.

Björn Ólafsson frá Þríhnúkum ehf. og Björn H. Barkarson frá VSÓ kynntu frummatsskýrsluna. Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögu Þríhnúka dags. 20. ágúst 2012 um afmörkun gönguleiða.

02

Digranesvegur. Götuhönnun

Lögð fram tillaga að umferðarskipulagi á Digranesvegi.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir að unnið verði eftir fyrirliggjandi tillögu umhverfissviðs.

03

Borgarholtsbraut, hraðahindranir

Lögð fram erindi frá íbúum við Borgarholtsbraut um viðbótar hraðahindranir.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir að settar verði tvær bráðabirgða hraðahindranir sitt hvoru megin við gönguleiðina yfir Borgarholtsbraut að Skólagerði þar til nýtt umferðarskipulag verður tilbúið.

04

Baugakór, hraðahindrun

Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 14. maí 2012 var lagt fram erindi frá íbúum í Baugakór um fleiri hraðahindranir í götuna. Lögð er fram talning á ökutækjum og mæling á umferðarhraða ásamt tillögu að umferðarskipulagi í götunni.

Umhverfis- og samgöngunefnd frestar afgreiðslu málsins.

05

Vegmerkingar á hringtorginu Hamraborg - Hafnarfjarðarvegur

Lagt fram erindi dags. 31. júlí 2012 varðandi vegmerkingar frá aðrein frá Hafnarfjarðarvegi að hringtorgi í Hamraborg.

Umhverfis- og samgöngunefnd frestar afgreiðslu málsins.

06

Reiðhjólastæði við skiptistöð í Hamraborg. Tillaga frá Pétri Ólafssyni

Á fundi bæjarráðs 21. júní 2012 óskaði Pétur Ólafsson eftir að kannað verði hvort hægt sé að koma upp reiðhjólastæðum við aðalskiptistöð Strætó í Hamraborg.

Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að vinna tillögu að reiðhjólastæðum við Hamraborgina.

07

Talning á hjólandi og gangandi

Lögð fram skýrsla um talningu á hjólandi og gangandi vegfarendum í Kópavogi í júní 2012.

Kynnt.

08

Staðarval fyrir nýjan urðunarstað

Lagt fram bréf dags. 18. júlí 2012 frá SORPU bs, Sorpurðun Vesturlands, Sorpeyðingarstöð Suðurnesja og Sorpstöð Suðurlands varðandi undirbúning að staðarvali fyrir nýjan urðunarstað.

Kynnt.

09

Evrópsk samgönguvika 2012

Evrópsk samgönguvika er haldin árlega 16.- 22. september og er þema vikunnar árið 2012 "Moving in the right direction" Lögð fram tillaga að dagskrá vikunnar.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir að taka þátt í Evrópskri samgönguviku eins og síðastliðin ár.

10

Samgöngustefna Kópavogs

Lögð fram drög að samgöngustefnu Kópavogs.

Lagt fram til kynningar.

11

Landsáætlun um meðhöndlun úrgangs 2013-2024 og innleiðing á rammatilskipun Evrópusambandsins um úrgang (2008/98/EB) í íslenskan rétt

Lögð fram drög að Landsáætlun um meðhöndlun úrgangs. Frestur til athugasemda er til 10. september 2012.

Umhverfis- og samgöngunefnd frestar afgreiðslu málsins.

12

Staðardagskrá 21, endurskoðun

Lögð fram drög að endurskoðaðri Staðardagskrá 21 fyrir Kópavogsbæ.

Umhverfis- og samgöngunefnd frestar afgreiðslu málsins.