Þríhnúkur.
Málsnúmer: 1208332
Ferill máls
01
Umhverfis- og samgöngunefnd - 65. fundur
Greint frá stöðu mála.
Lagt fram og kynnt.
02
Umhverfis- og samgöngunefnd - 30. fundur
Lagt er fram álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum á aðkomuvegi, aðstöðu til skoðunar og þjónustubyggingar við Þríhnúkagíg.
Lagt fram.
03
Bæjarstjórn - 1063. fundur
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar, sbr. lið 4 í fundargerð frá 18. september og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar og bæjarráðs einróma.
04
Bæjarráð - 2654. fundur
Lagt fram að nýju erindi Skipulagsstofnunar dags. 3. ágúst 2012 og skýrslu um mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðra framkvæmda við Þríhnúkagíg - aðgengi, aðkomu og þjónustubyggingu, ásamt minnisblaði skipulags- og byggingardeildar dags. 18. september 2012 varðandi skýrsluna. Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar, sbr. lið 4 í fundargerð frá 18. september og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
05
Skipulagsnefnd - 1216. fundur
Lagt fram að nýju erindi Skipulagsstofnunar dags. 3. ágúst 2012 og skýrslu um mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðra framkvæmda við Þríhnúkagíg - aðgengi, aðkomu og þjónustubyggingu. $line$Á fundi nefndarinnar 21. ágúst 2012 var málinu frestað og skipulagsstjóra falið að óska eftir lengri fresti til athugasemda. lagt fram erindi Skipulagsstofnunar dags. 27. ágúst 2012 þar sem fram kemur að umbeðinn frestur sé veittur til loka september 2012.$line$$line$Lagt fram minnisblað skipulags- og byggingardeildar dags. 18. september 2012 varðandi skýrslu um mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðra framkvæmda við Þríhnúkagíg - aðgengi, aðkomu og þjónustubyggingu.
Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
06
Bæjarráð - 2652. fundur
Lögð fram að nýju tillaga Þríhnúka ehf. um afmörkun gönguleiða við þríhnúka, ásamt umsögn umhverfis- og samgöngunefndar, dags. 28. ágúst, en erindinu var vísað til umsagnar umhverfis- og samgöngunefndar á fundi bæjarráðs þann 23. ágúst sl.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.
07
Umhverfis- og samgöngunefnd - 24. fundur
Frummatsskýrsla um aðgengi að Þríhnúkagíg lögð fram. Frestur til athugasemda rennur út 21. september 2012. Einnig óskar bæjarráð á fundi 23. ágúst eftir umsögn nefndarinnar varðandi erindi dags. 20. ágúst um afmörkun gönguleiða.
Björn Ólafsson frá Þríhnúkum ehf. og Björn H. Barkarson frá VSÓ kynntu frummatsskýrsluna. Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögu Þríhnúka dags. 20. ágúst 2012 um afmörkun gönguleiða.
08
Bæjarráð - 2651. fundur
Kl. 9.00 mættu Björn Barkarson frá VSÓ og Björn Ólafsson frá Þríhnúkum ehf. til fundar og gerðu grein fyrir matsskýrslu vegna umhverfisáhrifa við framkvæmdir við Þríhnúka. Þá lögðu þeir fram erindi dags. 20. ágúst um afmörkun gönguleiða.
Bæjarráð vísar erindi Þríhnúka ehf. til umhverfis- og samgöngunefndar til umsagnar. Sviðsstjóri umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
09
Skipulagsnefnd - 1214. fundur
Lagt fram erindi Skipulagsstofnunar dags. 3. ágúst 2012 og skýrslu um mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðra framkvæmda við Þríhnúkagíg - aðgengi, aðkomu og þjónustubyggingu. Forsvarsmenn Þríhnúka Björn Ólafsson og Björn H. Bjarkarson gerðu grein málinu.
Frestað. Skipulagsnefnd gerir athugasemd við stuttan umsagnafrest, þ.e. til 31. águst 2012, og felur skipulagsstjóra að óska eftir því við skipulagsstofnun að frestur til athugasemda verði lengdur til loka september 2012 svo að tími gefist til að kynna efni framlagðra gagna fyrir nefndum og ráðum bæjarins.