Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Umhverfis- og samgöngunefnd - 52. fundur

í Fannborg 6, fundarherbergi 2. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Hjördís Ýr Johnson - formaður
  • Jón Kristinn Snæhólm - aðalfulltrúi
  • Hreiðar Oddsson - aðalfulltrúi
  • Sigurður M Grétarsson - aðalfulltrúi
  • Hreggviður Norðdahl - áheyrnarfulltrúi
  • Birgir Hlynur Sigurðsson - skipulagsstjóri
  • Bjarki Þórir Valberg

Ritari

  • Bjarki Valberg

Dagskrá fundar

01

Kynning á starfi skipulags- og byggingardeildar

Stutt kynning á starfi skipulags- og byggingardeildar.

Kynnt.

02

Vinir Vífilsfells - Óskað eftir samstarfi

Lagt fram erindi Sigurðar Sigurðarsonar, dags. 26.5.2014 þar sem óskað er eftir samstarfi við Kópavogsbæ varðandi málefni Vífilsfells.

Umhverfis- og samgöngunefnd fagnar frumtaki Vina Vífilsfells og samþykkir erindið. Umhverfis- og samgönunefnd vísar fyrirhuguðum kostnaði varðandi fyrstu sex þætti erindisins til bæjarráðs og bæjarstjórnar til afgreiðslu.

03

Hænsnahald í Kópavogi, fyrirspurn

Lagt fram erindi Helgu Jónsdóttur, dags. 22.5.2014 og erindi Steinars Snæbjörnssonar, dags. 16.6.2014 varðandi hænsna- og hanahald í Kópavogi.

Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfisfulltrúa að leggja til drög að samþykkt um hænsnahald í samráði við Heilbrigðiseftirlit Hafnafjarðar- og Kópavogssvæðis í samræmi við úrfærslur Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur.

04

Umferðamál - Ásakór - Ósk um hraðahindranir

Lagt fram erindi Erlu Sigurbjartsdóttur, dags. 14.6.2014 varðandi umferðarmál í Ásakór.

Samkvæmt umferðaskipulagi Kópavogsbæjar 2012 eru fyrirhugaðar tvær gangbrautir og ein hraðahindrun í umræddri götu. Umhverfis- og samgöngunefnd vísar erindinu til gerðar næstu fjárhagsáætlunar.

05

"Umbúðaþjóðfélagið"

Lagt fram minnisblað, dags. 25.6.2014 varðandi framvindu verkefnisins.

Lagt fram og kynnt.

06

Hjólreiðaáætlun Kópavogsbæjar

Lögð fram hjólreiðakönnun skv. Hjólreiðaáætlun Kópavogs dags. 26.6.2014 ásamt minnisblaði dags. 27.6.2014.

Lagt fram og kynnt.

07

Umferðaröryggisáætlun Kópavogs, framvinda.

Lagt fram minnisblað dags. 26.6.2014 varðandi framvindu Umferðaröryggisáætlun Kópavogs.

Kynnt.

08

Landsáætlun um meðhöndlun úrgangs 2013 - 2024 og frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs.

Lögð fram staðfesting á breytingu á lögum nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs, með síðari breytingum (innleiðing tilskipunar 2008/98/EB, rafhlöður og rafgeymar, raf- og rafeindatæki) frá 27.5.2014 ásamt minnisblaði dags. 26.6.2014.

Lagt fram og kynnt.

Umhverfis- og samgöngunefnd óskar eftir því að sett verði upp umferðahraða mælingarskilti á Digranesvegi eins fljótt og kostur gefst.