Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Hjólreiðaáætlun Kópavogsbæjar

Málsnúmer: 1104046

Ferill máls

01

Umhverfis- og samgöngunefnd - 79. fundur

Greint frá hjólreiðatalningum 2016.

Lagt fram og kynnt. Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkti tillögur að þremur stafrænum talningum sumarið 2017.

02

Umhverfis- og samgöngunefnd - 52. fundur

Lögð fram hjólreiðakönnun skv. Hjólreiðaáætlun Kópavogs dags. 26.6.2014 ásamt minnisblaði dags. 27.6.2014.

Lagt fram og kynnt.

03

Umhverfis- og samgöngunefnd - 47. fundur

Lögð fram tillaga að hjólreiðakönnun samkvæmt Hjólreiðaáætlun Kópavogs sem samþykkt var júní 2012.

<SPAN style="FONT-SIZE: 12pt; FONT-FAMILY: Calibri; FONT-WEIGHT: bold; COLOR: black; language: is; mso-ascii-font-family: Calibri; mso-fareast-font-family: +mn-ea; mso-bidi-font-family: +mn-cs; mso-color-index: 1; mso-font-kerning: 12.0pt">Lagt fram og kynnt. Samþykkt.</SPAN>

04

Umhverfis- og samgöngunefnd - 46. fundur

Lögð fram tillaga að hjólreiðakönnun samkvæmt Hjólreiðaáætlun Kópavogs sem samþykkt var júní 2012.

Umhverfis- og samgöngunefnd frestar afgreiðslu málsins.

05

Umhverfis- og samgöngunefnd - 35. fundur

Nýr áningastaður fyrir hjólreiðafók við Kópavogstún hefur verið tekinn í notkun.

Umhverfisfulltrúi kynnti. Umhverfis- og samgöngunefnd lýsir yfir ánægju sinni um hve vel hefur tekist til.

06

Umhverfis- og samgöngunefnd - 29. fundur

Lögð fram tillaga umhverfissviðs um gerð göngu- og hjólastígakorts, ásamt endurnýjun á skilti við Kópavogstún.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir að verkfræðistofan Mannvit vinni að göngu- og hjólastígakorti fyrir Kópavogsbæ í samræmi við kort nágrannasveitarfélaga, einnig að sett verði upp nýtt upplýsingaskilti með göngu- og hjólastígakorti við Kópavogstún í tengslum við umhverfisviðurkenningar. Jafnframt er umhverfissviði falið að kanna hvort hægt sé að koma þessum upplýsingum í gagnvirkt form, t.d. google maps.

07

Bæjarstjórn - 1060. fundur

Tillaga að hjólreiðaáætlun Kópavogsbæjar, samþykkt í bæjarráði 24. maí, sbr. lið 14 í fundargerð.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs og samþykkir tillögu að hjólreiðaáætlun Kópavogsbæjar.

08

Bæjarráð - 2642. fundur

Lögð fram að nýju tillaga að hjólreiðaáætlun Kópavogsbæjar, sem samþykkt var í umhverfis- og samgöngunefnd en frestað var á fundi bæjarráðs 10/5.

Bæjarráð samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti.

09

Bæjarráð - 2641. fundur

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir Hjólreiðaáætlun Kópavogsbæjar og vísar henni til afgreiðslu bæjarráðs.

Bæjarráð frestar afgreiðslu til næsta fundar.

10

Umhverfis- og samgöngunefnd - 19. fundur

Lögð fram tillaga að hjólreiðaáætlun Kópavogsbæjar.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir Hjólreiðaáætlun Kópavogsbæjar og vísar henni til afgreiðslu bæjarráðs.

11

Umhverfis- og samgöngunefnd - 18. fundur

Lögð fram tillaga að hjólaleið meðfram Hafnarfjarðarveginum.

Tillagan kynnt og unnið áfram að málinu.

12

Umhverfis- og samgöngunefnd - 15. fundur

Lögð var fram tillaga að hjólaleiðakorti sem uppfært hefur verið samkvæmt ábendingum hjólreiðamanna. Einnig var lögð fram tillaga að forgangsröðun framkvæmda við hjólaleiðir og tillaga að tengingu meðfram Reykjanesbrautinni milli Mjóddar í Reykjavík og Lindahverfis.

Umhverfis- og samgöngunefnd líst vel á tillöguna.

13

Skipulagsnefnd - 1195. fundur

Frá umhverfis- og samgöngunefnd.$line$Í tengslum við endurskoðun aðalskipulags bæjarins minnir umhverfis- og samgöngunefnd á að reiðleiðum frá Glaðheimum um Linda- og Salahverfi verði breytt í hjóla- og/eða göngustíga.

<DIV&gt;Vísað til endurskoðunar aðalskipulags.</DIV&gt;

14

Umhverfis- og samgöngunefnd - 8. fundur

Á fundi umferðarnefndar 21. september 2010 var nefndarmanni falið að leiða vinnuhóp við skipulagningu hjólaleiða í Kópavogi. Fyrstu niðurstöður voru lagðar fram á fundi 1. febrúar 2011 og málinu vísað til nýrrar umhverfis- og samgöngunefndar.$line$Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 11. apríl lagði nefndin til að óskað yrði eftir tillögum frá hjólreiðasamtökum og íbúum varðandi hentuga stofnstíga fyrir hjólreiðar innan Kópavogsbæjar og tengingar við önnur sveitarfélög.$line$Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 12. september 2011 var lögð fram skýrsla um niðurstöður talninga á göngustígum í Kópavogi og spurningakönnunar. Einnig var lögð fram kostnaðaráætlun vegna ráðgjafar við gerð hjólreiðaáætlunar.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<STRONG&gt;Málið kynnt og rætt. Umhverfis- og samgöngunefnd minnir á&nbsp;að við endurskoðun aðalskipulags Kópavogs og Staðardagskrár 21 verði reiðleiðum frá Glaðheimum um Linda- og Salahverfi, breytt í hjóla og/eða göngustíga.</STRONG&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

15

Umhverfis- og samgöngunefnd - 2. fundur

Á fundi umferðarnefndar 21. september 2010 var nefndarmanni falið að leiða vinnuhóp við skipulagningu hjólaleiða í Kópavogi. Fyrstu niðurstöður voru lagðar fram á fundi 1. febrúar 2011 og málinu vísað til nýrrar umhverfis- og samgöngunefndar.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<P class=MsoNormal 0cm; 0pt?? 0cm MARGIN: TEXT-INDENT:&gt;<B mso-bidi-font-weight: normal??&gt;<SPAN mso-fareast-language: mso-fareast-font-family: mso-bidi-font-size: New mso-bidi-font-family: 12.0pt; ?? IS? Roman?; ?Times Times&gt;Umhverfis- og samgöngunefnd leggur til að óskað verði eftir tillögum frá hjólreiðasamtökum og íbúum varðandi hentuga stofnstíga fyrir hjólreiðar innan Kópavogsbæjar og tengingar við önnur sveitarfélög.</SPAN&gt;</B&gt;</P&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;