Umhverfis- og samgöngunefnd - 40. fundur
í Fannborg 6, fundarherbergi 2. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Margrét Björnsdóttir - aðalfulltrúi
- Margrét Júlía Rafnsdóttir - aðalfulltrúi
- Helgi Jóhannesson - aðalmaður
- Steingrímur Hauksson
- Kristján Matthíasson - aðalfulltrúi
- Hreiðar Oddsson - aðalmaður
- Tryggvi Magnús Þórðarson - áheyrnarfulltrúi
- Gylfi Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir - starfsmaður nefndar
- Birgir Hlynur Sigurðsson
Ritari
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir
Dagskrá fundar
Borist hefur erindi frá íbúa, dags. 28.08.2013, þar sem óskað er eftir hraðahindrun við Gulaþing.
Samkvæmt umferðarskipulagi Kópavogs er gert ráð fyrir tveimur hraðahindrunum í Gulaþingi. Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir aðra hraðahindrun.
Erindi hefur borist þar sem óskað er eftir hraðahindrun við Fífulind.
Samkvæmt umferðarskipulagi Kópavogs er gert ráð fyrir hraðahindrun í götunni. Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að skoða staðsetningu hraðahindrunar nánar.
Umhverfissvið leggur fram tillögu að hraðahindrun við Kársnesskóla eftir að erindi barst frá skólastjóra Kársnesskóla dags. 21.05.2013.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlagða tillögu og vill með þessu bæta umferðaröryggi á gönguleiðum skólabarna.
Erindi hefur borist frá íbúa í Sólarsölum þar sem óskað er eftir hraðahindrun í götunni.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir að sett verði gangbraut í Sólarsali þar sem um er að ræða fjölfarna gönguleið skólabarna og vill með þessu bæta umferðaröryggi á gönguleiðum skólabarna.
Borist hefur erindi frá íbúa, dags. 30.08.2013, þar sem óskað er eftir gangbraut yfir Kambaveg.
Umhverfissviði er falið að vinna áfram í málinu.
Borist hefur erindi frá íbúa, dags. 11.08.2013, þar sem óskað er eftir að beygju umferðarljós við Smárahvammsveg verði endurskoðuð. Einnig er lagt fram erindi frá Arkverk, dags. 22.08.2013
Erindinu er hafnað út frá öryggi gangandi vegfarenda.
Erindi barst frá íbúa, dags. 3.09.2013, þar sem óskað er eftir aðgerðum á Nýbýlavegi vegna umferðahraða.
Úttekt á umferðaröryggisþáttum Nýbýlavegar, í samvinnu við Vegagerðina sem er veghaldari vegarins, stendur yfir. Erindinu verður vísað til Vegagerðarinnar.
Lögð er fram kostnaðaráætlun vegna tveggja útfærsla á fyrirhuguðum framkvæmdum við Skólagerði og tölvupóstur frá íbúa, dags. 27.08.2013.
Frestað.
Lögð er fram skýrsla um úttekt á grenndargámastöðvum í Kópavogi og minnisblað frá umhverfisfulltrúa.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir að pappírsgámar verði fjarlægðir á grenndargámastöðvum í bænum þar sem bláar pappírstunnur eru komnar við öll heimili bæjarins.
10
Viðbragðsáætlun vegna mengunar. Tillaga frá Margréti Björnsdóttur, Ómari Stefánssyni og Rannveigu Ásgeirsdóttur.
Umhverfisfulltrúi leggur fram viðbragðsáætlun fyrir Kópavogslæk. Einnig er lögð fram skýrslan Frumathugun á Kópavogslæk sem unnin var af Náttúrufræðistofu Kópavogs í september 2013.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlagða viðbragðsáætlun og vísar málinu til bæjarráðs til afgreiðslu.
Lögð eru fram drög að samgöngusamningi við starfsmenn.
Samgöngusamningur kynntur og umhverfisfulltrúa falið að vinna áfram að málinu.
Kynntar eru fyrirhugaðar breytingar og uppfærsla á heimasíðu sem varðar umhverfismál.
Kynnt.
Lagðar eru fram fundargerðir stjórnar Reykjanesfólkvangs sem af er árið 2013.
Kynnt.