Umhverfis- og samgöngunefnd - 21. fundur
í Fannborg 2, fundarherbergi 3. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Margrét Júlía Rafnsdóttir - aðalfulltrúi
- Helgi Jóhannesson - aðalmaður
- Kristján Matthíasson - aðalfulltrúi
- Hreiðar Oddsson - aðalmaður
- Margrét Björnsdóttir - aðalfulltrúi
- Tryggvi Magnús Þórðarson - áheyrnarfulltrúi
- Gylfi Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi
- Jón Ingi Guðmundsson - starfsmaður nefndar
Ritari
- Hólmfríður Þorsteinsdóttir
Dagskrá fundar
Lögð fram tillaga að aðilum til viðurkenningar.
Tillögur kynntar og unnið verður áfram að málinu.
Lögð fram tillaga að endurskoðun á stjórn Bláfjallafólkvangs.
Tillagan er samþykkt og umhverfisfulltrúa falið að senda bréf á Umhverfisstofnun.
Samstarfsverkefni Garðabæjar og Kópavogs um gerð og uppsetningu hringsjár á Smalaholti lagt fram.
Kynnt.
Á fundi bæjarráðs 12. maí 2011 var samþykkt að vísa málinu til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2012.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir að unnið verði áfram að málinu og leggur til að Ýmishöfn sæki um Bláfánann 2013. Í framhaldinu verði einnig sótt um Bláfánann fyrir Kópavogshöfn.
Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar þann 2. apríl 2012 var lögð fram og kynnt aðgerðaráætlun um hreinsun atvinnulóða á Kársnesi.$line$Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 14. maí 2012 var málið lagt fram á ný.$line$Málið kynnt og ákveðið að fara í aðgerðir með Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.$line$Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 4. júní er staða málsins kynnt.
Samkvæmt könnun umhverfissviðs Kópavogs og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins voru tvær lóðir sem ekki stóðust kröfur um eldvarnir. Umhverfissvið Kópavogs og SHS vinna áfram að málinu. Umhverfis- og samgöngunefnd leggur áherslu á mikilvægi þess að atvinnurekendur og lóðarhafar á Kársnesi hreinsi lóðir sínar sem fyrst.
Lagður fram listi yfir framkvæmdir í tengslum við umferðaröryggisáætlun sumarið 2012.
Kynnt.
Lögð fram tillaga að gerð næstu útikennslusvæða fyrir leik- og grunnskóla í Kópavogi.
Kynnt og samþykkt.
Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 7. maí 2012 var óskað eftir upplýsingum um kostnað við leið 21 og breytingar á leið 28. Lögð fram gögn um málið.
Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að vinna tillögu að biðstöð fyrir strætó við Reykjanesbraut í Kópavogi.
Lögð fram tillaga að endurnýjun sorpíláta við göngustíga og á opnum svæðum í Kópavogi meðal annars með tilliti til flokkunar.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir tillöguna og leggur til við bæjarráð að á fjárhagsáætlun næsta árs verði gert ráð fyrir þessu.