Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Umhverfis- og samgöngunefnd - 124. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Andri Steinn Hilmarsson - formaður
  • Sigurður Sigurbjörnsson - aðalmaður
  • Kristín Hermannsdóttir - aðalmaður
  • Hreiðar Oddsson - aðalmaður
  • Indriði Ingi Stefánsson - aðalmaður
  • Erlendur H. Geirdal - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Bjarki Þórir Valberg - starfsmaður nefndar
  • Birkir Rútsson - deildarstjóri gatnadeildar

Ritari

  • Bjarki Valberg

Dagskrá fundar

01

Stefnumótun - nefndir/ráð

Stýrihópur stefnumótunar Kópavogs óskar eftir umfjöllun um samantekt vinnustofu nefnda ráða sbr leiðbeinandi spurningar. Niðurstöður umfjöllunar berist verkefnastjóra stefnumótunar fh. stýrihóps.

Frestað.

02

Garðlönd 2020

Frá Umhverfissviði lögð fram tillaga að fyrirkomulagi og gjaldi fyrir garðlönd Kópavogs 2020.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlagt fyrirkomulag og gjald fyrir garðlönd Kópavogs 2020.

03

Endurskoðun Aðalskipulags Kópavogs 2012-2024 - nýtt tímabil 2018-2030

Gert grein fyrir stöðu mála.

Lagt fram og kynnt.

04

Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna

Frá stýrihóp innleiðingar Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna hjá Kópavogsbæ eru lögð fram drög að aðgerðaáætlun innleiðingar Barnasáttmála Sameinu þjóðanna í Kópavogi og óskað eftir umsögnum.

Umhverfis- og samgöngunefnd gerir ekki athugasemd við drög að aðgerðaáætlun innleiðingar Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í Kópavogi en gerir fyrirvara um að koma með ábendingar á síðari stigum málsins ef þörf krefur.

05

Gjaldskilda á Hamraborgarsvæði

Lögð fram tillaga umhverfissviðs varðandi fyrirkomulag og gjaldskildu á Hamraborgarsvæði.

Frestað.