Umhverfis- og samgöngunefnd - 171. fundur
á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Guðjón Ingi Guðmundsson - aðalmaður
- Jane Victoria Appleton - aðalmaðurBoðaði forföllJane Victoria Appleton - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Indriði Ingi Stefánsson - aðalmaður
- Leó Snær Pétursson - áheyrnarfulltrúi
- Sigurlaug Kristín Sævarsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllSigurlaug Kristín Sævarsdóttir - vara áheyrnarfulltrúiSat fundinn í staðinn
- Bergur Þorri Benjamínsson - aðalmaðurBoðaði forföllBergur Þorri Benjamínsson - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Svava Halldóra Friðgeirsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Karen Jónasdóttir - verkefnastjóri
- Guðrún Edda Finnbogadóttir - skrifstofustjóri umhverfissviðs
Ritari
- Karen Jónasdóttir
Dagskrá fundar
Kosning nýs varaformanns nefndarinnar í stað Gunnars Sæs Ragnarssonar.
Guðjón Ingi Guðmundsson er kjörinn varaformaður með fjórum atkvæðum. Indriði Ingi Stefánsson situr hjá.
Drög að loftslagsstefnu til umræðu og afgreiðslu til bæjarráðs. Auður Finnbogadóttir og Jakob Sindri Þórisson gera grein fyrir erindinu.
Frestað. Umhverfis- og samgöngunefnd óskar eftir frekari gögnum
sem felur í sér skýrari stefnu og aðgerðaráætlun.
Bókun Tryggva Felixsonar, varafulltrúi Vina Kópavogs í Umhverfis- og samgöngunefnd
Aðgerðir til að draga úr líkunum á hættulegum breytingum á loftslagi jarðar eru eitt mikilvægast og flóknasta viðfangs efni stjórnmálanna, á öllum stjórnsýslustigum. Á Íslandi gegna sveitarfélögin mikilvægu hlutverki sem þeim ber að taka föstu tökum og vanda til verka þar sem mikið er í húfi að vel takist til. Skv. ákvæðum 5. gr. laga um loftslagsmál skulu sveitarfélög setja sér loftslagsstefnu. Stefnan skal innihalda skilgreind markmið um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og kolefnisjöfnun starfseminnar ásamt aðgerðum svo að þeim markmiðum verði náð. Mörg ár eru liðin frá því að þetta ákvæði um ábyrgð og skyldur sveitarfélaga var sett. Framlögð tillaga að loftslagstefnu fyrir Kópavog er að mínu mati ekki nægjanlega skýr og vel úr garði gerð, uppfyllir ekki ákvæði laga og er ekki tilbúin til endanlegrar afgreiðslu og kynningar. Efnislegar athugasemdir mínar er að finna í minnisblaði sem ég legg fram á þessum fundi.
Lögð fram drög að áætlun um fundi umhverfis- og samgöngunefndar fyrir árið 2024.
Samþykkt.
Lögð fram fyrirspurn Indriða Inga Stefánssonar um reglur ljósaskilta.
Vísað til úrvinnslu umhverfissviðs og lögfræðideildar.
Lögð fram fyrirspurn Indriða Inga Stefánssonar um tímatöflu strætóleiðar 36.
Vísað til fulltrúa bæjarstjórnar í stjórn Strætó BS.
Lögð fram fyrirspurn Indriða Inga Stefánssonar um að framkvæma úttekt á fjölda bílastæða hreyfihamlaða við íþróttamannvirki í Kópavogi.
Umhverfis- og samgöngunefnd leggur til tillögu um að bílastæðum fyrir hreyfihamlaða verði fjölgað við íþróttahúsið Digranesi.
Vísar til bæjarráðs til úrvinnslu.