Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Ungmennaráð - 7. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Sóley Erla Jónsdóttir Líndal - aðalfulltrúi
  • Davíð Fannar Sigurðsson - aðalfulltrúi
  • Halldís Sigurðard. Hjaltested - aðalfulltrúi
  • Unnur María Agnarsdóttir - aðalfulltrúi
  • Sana Salah Karim - aðalfulltrúi
  • Selma Karlsdóttir - aðalfulltrúi
  • Kristófer Breki Halldórsson - aðalfulltrúi
  • Sóley Þórarinsdóttir - aðalfulltrúi
  • Stefán Daði Karelsson - aðalfulltrúi
  • Viktoría Georgsdóttir - aðalfulltrúi
  • Gunnlaugur Ernir Ragnarsson - aðalfulltrúi

Starfsmenn

  • Amanda Karima Ólafsdóttir - deildarstjóri ÍTK

Ritari

  • Amanda K. Ólafsdóttir

Dagskrá fundar

01

Lýðheilsustefna: innleiðing

Anna Elísabet Ólafsdóttir sérfræðingur í lýðheilsumálum hjá Kópavogsbæ kynnir innleiðingu lýðheilsustefnunnar og verkefni tengt andlegri líðan ungs fólks.

Fundur settur kl. 18.08.

Ungmennaráð Kópavogs þakkar Önnu Elísabet Ólafsdóttur kærlega fyrir áhugaverða og gagnlega kynningu. Almenn umræða um lýðheilsu fólks, andlega líðan ungs fólks og verkefni í tengslum við líðan og forvarnir.

Stefán Daði Karelsson fór af fundi kl. 18.43.

Anna Elísabet Ólafsdóttir fór af fundi kl. 18.50.

02

Ungmennaráð Kópavogs-fræðsla

UMFERÐARÖRYGGI OKKAR MÁL! Niðurstöður málþings um ungt fólk og umferðaröryggi lagt fram og umræða.

Umræða um hvernig sé best að koma ábendingum áleiðis um umferðaröryggi, bæta lýsingu á stígum og auka fræðslu um umferðaröryggi sérstaklega fyrir ungt fólk. Aðgreina betur hjóla- og göngustíga og fjölga hjólastígum.

Viktoría Georgsdóttir fór af fundi kl. 19.00.

03

Ungmennaráð 2019

Ákveða dagsetningu fyrir opinn fund ungmennaráðs.

Fulltrúar ungmennaráðs kjósa um hvort tengiliðir bæjarstjórnar við ungmennaráð fái fundarboð á alla formlega fundi ungmennaráðs.

Ákveðið að halda opinn fund ungmennaráðs miðvikudaginn 13.mars 2019 og ræða undirbúning á næsta fundi ungmennaráðs. Starfsmanni ungmennaráðs falið að athuga með staðsetningu fyrir fundinn í samráði við ráðið.

Ákveðið að fresta kosningu um hvort tengiliðir bæjarstjórnar við ungmennaráð fái fundarboð á alla formlega fundi ráðsins fram á næsta fund.

Næsti fundur ungmennaráðs verður haldinn 11.febrúar 2019.