Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Ungmennaráð - 29. fundur

í Molanum ungmennahúsi Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Aldís Inga Hrannarsdóttir - aðalfulltrúi
  • Bartosz Borecki - aðalfulltrúi
  • Birgir Gauti Kristjánsson - aðalfulltrúi
  • Brynjar Hugi Karlsson Eriksen - aðalfulltrúi
  • Eygló María Jónsdóttir - aðalfulltrúi
  • Katla Kristinsdóttir - aðalfulltrúi
  • Hugrún Þorbjarnardóttir - aðalfulltrúi
  • Karen Lind Stefánsdóttir - aðalfulltrúi
  • Magnús Snær Hallgrímsson - aðalfulltrúi
  • Lúkas Leonardo Passaro - aðalfulltrúi
  • Katrín Ýr Erlingsdóttir - aðalfulltrúi
  • Gunnar Hugi Halldórsson - aðalfulltrúi
  • Tóbías Dagur Úlfsson - aðalfulltrúi
  • Kolfinna Björt Þórðardóttir - aðalfulltrúi
  • Tinna Hjördís Harðardóttir - aðalfulltrúi

Starfsmenn

  • Amanda Karima Ólafsdóttir - deildarstjóri ÍTK

Ritari

  • Amanda K. Ólafsdóttir

Dagskrá fundar

01

Ungmennaþing_Ungmennaráð 2022

Undirbúningur að ungmennaþingi 2022.

Umræða um skipulag og undirbúning ungmennaþings mars 2022.

02

Bæjarfulltrúi Karen Halldórsdóttir óskar eftir að fá á dagskrá endurskoðun fyrirkomulags sundkennslu í grunnskólum

Bæjarráð vísar erindi til umfjöllunar í ungmennaráði.

Ungmennaráð leggur til að grunnskólar Kópavogs skoði kynjaskiptingu í sundkennslu á unglingastigi, en á sama tíma komi til móts við þá sem skilgreina sig kynsegin, t.d. með aðgengi að sérklefum. Grunnskólar séu einnig hvattir til að gefa nemendum tækifæri á að ljúka hæfniviðmiðum í sundi fyrr og skoðað verði að bjóða upp á sund sem valgrein á unglingastigi.