Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Bæjarfulltrúi Karen Halldórsdóttir óskar eftir að fá á dagskrá endurskoðun fyrirkomulags sundkennslu í grunnskólum

Málsnúmer: 2201695

Ferill máls

01

Ungmennaráð - 29. fundur

Bæjarráð vísar erindi til umfjöllunar í ungmennaráði.

Ungmennaráð leggur til að grunnskólar Kópavogs skoði kynjaskiptingu í sundkennslu á unglingastigi, en á sama tíma komi til móts við þá sem skilgreina sig kynsegin, t.d. með aðgengi að sérklefum. Grunnskólar séu einnig hvattir til að gefa nemendum tækifæri á að ljúka hæfniviðmiðum í sundi fyrr og skoðað verði að bjóða upp á sund sem valgrein á unglingastigi.



02

Menntaráð - 92. fundur

Bæjarráð vísar erindi til umfjöllunar í menntaráð.

Menntaráð leggur til að grunnskólar Kópavogs hvetji nemendur til að ljúka 10. sundstigi við lok 9. bekkjar og í þess stað verði boðið upp á tíma í hreyfingu eða bóklegum skólaíþróttum. Grunnskólar í samstarfi við menntasvið leiti fjölbreyttra leiða til að koma til móts við nemendur sem eiga erfitt með að mæta í sundkennslu. Menntaráð hvetur Mennta- og barnamálaráðuneyti til að endurskoða kröfur í aðalnámskrá grunnskóla.

03

Bæjarráð - 3075. fundur

Bæjarfulltrúi Karen Elísabet Halldórsdóttir óskar eftir að erindi umboðsmanns barna um fyrirkomulag sundkennslu í grunnskólum verði sett á dagskrá bæjarráðs og menntaráðs.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til umfjöllunar menntaráðs og ungmennaráðs.