Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Velferðar- og mannréttindaráð - 6. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Björg Baldursdóttir - formaður
  • Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
  • Svava Halldóra Friðgeirsdóttir - aðalmaður
  • Matthías Björnsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Matthías Björnsson - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Hólmfríður Hilmarsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
  • Einar Örn Þorvarðarson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Einar Örn Þorvarðarson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Erlendur H. Geirdal - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jóhanna Lilja Ólafsdóttir
  • Karítas Eik Sandholt - lögfræðingur

Ritari

  • Jóhanna Lilja Ólafsdóttir

Dagskrá fundar

01

Fjárhagsaðstoð. Áfrýjun

Áfrýjun dags. 12.5.2025, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.

Fært í trúnaðarbók.

02

Fjárhagsaðstoð. Áfrýjun

Áfrýjun dags. 9.6.2025, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.

Fært í trúnaðarbók.

03

Félagsleg leiguíbúð. Áfrýjun

Áfrýjun dags. 2.6.2025, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.

Fært í trúnaðarbók.

04

Kvörtun vegna biðtíma eftir félagslegu húsnæði

Lagt fram til kynningar bréf umboðsmanns Alþingis dags. 27.5.2025.

Lagt fram.

05

Umsókn um akstursþjónustu aldraðra. Áfrýjun

Áfrýjun dags. 16.6.2025, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu

Fært í trúnaðarbók.

06

Endurskoðun á gjaldskrá vegna akstursþjónustu fyrir fatlað fólk

Lögð fram til afgreiðslu endurskoðuð gjaldskrá ásamt breytingum á reglum um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk.

Velferðar- og mannréttindaráð vísar málinu til afgreiðslu í bæjarráði og staðfestingar í bæjarstjórn.

07

Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks - 20. fundur frá 03.06.2025

Fundargerð í tveimur liðum.

Lagt fram.

08

Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks - 21. fundur frá 19.06.2025

Fundargerð í einum lið.

Lagt fram.

Fundarhlé 17.01 til 17.06.

Bókun:

Við fulltrúar Pírata, Samfylkingar, Viðreisnar og Vina Kópavogs fögnum þeirri réttarbót fyrir fatlað fólk sem breyting ráðherra á byggingarreglugerð sem gildi tók hinn 5. júní s.l. hefur í för með sér. Þar er nú endurvakin regla um 25 metra hámarksfjarlægð frá aðalinngangi bygginga að bílastæði fyrir hreyfihamlaða.

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir

Erlendur H. Geirdal

Soumia I. Georgsdóttir

Hólmfríður Hilmarsdóttir

09

Tölulegar upplýsingar velferðarsviðs

Lagðar fram til kynningar tölulegar upplýsingar um starfsemi velferðarsviðs september til desember 2024.

Lagt fram.

10

Aðgerðaáætlun velferðarsviðs 2025

Skrifstofustjóri kynnir framgang aðgerða í aðgerðaáætlun velferðarsviðs vegna ársins 2025.

Lagt fram.

11

Styrkbeiðni frá Skjólinu

Lögð fram til afgreiðslu beiðni um rekstrarstyrk vegna ársins 2025 frá Skjólinu ásamt umbeðnum upplýsingum.

Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir að veita Skjólinu styrk að upphæð kr. 300.000- fyrir árið 2025 gegn framvísun ársreiknings.

12

Sameiginlegir fundir félagsmálanefnda sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um málefni heimilislausra

Lagt fram til afgreiðslu erindi frá velferðarsviði Reykjavíkur dags. 28.5.2025.

Velferðar- og mannréttindaráð tekur jákvætt í erindið og felur sviðsstjóra að afla upplýsinga um fyrirkomulag fundar.

13

Kynning á starfsemi velferðarsviðs

Skrifstofustjóri kynnir starfið á velferðarsviði á milli funda velferðar- og mannréttindaráðs.