Velferðar- og mannréttindaráð - 5. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Björg Baldursdóttir - formaður
- Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
- Svava Halldóra Friðgeirsdóttir - aðalmaður
- Matthías Björnsson - aðalmaður
- Hólmfríður Hilmarsdóttir - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
- Einar Örn Þorvarðarson - aðalmaður
- Erlendur H. Geirdal - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Sigrún Þórarinsdóttir - starfsmaður velferðarsviðs
- Jóhanna Lilja Ólafsdóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Jóhanna Lilja Ólafsdóttir
Dagskrá fundar
Lögð fram til kynningar drög að erindisbréfi velferðar- og mannréttindaráðs ásamt viðauka IV um framsal til fullnaðarákvörðunar mála. Pálmi Þór Másson bæjarritari og Steinn Sigríðar Finnbogason lögmaður gera grein fyrir erindisbréfinu.
Lagt fram til kynningar.
Ráðsmönnum og áheyrnarfulltrúa velferðar- og mannréttindaráðs verður gert kleift að koma athugasemdum sínum við erindisbréfið á framfæri í gegnum sameiginlegt skjal vistað í skýi.
Steinn Finnbogason og Pálmi Másson viku af fundi kl. 17:04.
Verkefnastjóri farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins kynnir verkáætlun og hlutverk farsældarráðsins.
Velferðar- og mannréttindaráð þakkar fyrir góða kynningu.
Hanna B. Jónsdóttir vék af fundi kl. 17:24.
Áfrýjun dags. 27.4.2025, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.
Fært í trúnaðarbók.
Rannveig Þorsteinsdóttir vék af fundi kl.17:36.
Áfrýjun dags. 7.5.2025, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.
Fært í trúnaðarbók.
Elín Róbertsdóttir vék af fundi kl. 17:54.
Áfrýjun dags. 7.5.2025, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.
Fært í trúnaðarbók.
Elín Róbertsdóttir vék af fundi kl. 17:54.
Fundarhlé 18:23- 18:47.
Áfrýjun dags. 5.5.2025, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.
Fært í trúnaðarbók.
Elín Róbertsdóttir vék af fundi kl. 17:54.
Lögð fram til kynningar og umræðu endurskoðuð gjaldskrá ásamt breytingum á reglum um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk.
Velferðar- og mannréttindaráð vísar málinu til umsagnar notendaráðs í málefnum fatlaðs fólks.
Karítas Sandholt vék af fundi kl. 19:16.
Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs dags. 10.3.2025 var lagt fram svar vegna fyrirspurnar ráðsins vegna biðlista eftir félagslegri þjónustu. Á fundinum var bókað:
Velferðar- og mannréttindaráð þakkar fyrir upplýsingarnar. Ráðið óskar eftir ítarlegri upplýsingum um biðtíma eftir skammtímadvölum.
Nú er lagt fram minnisblað skrifstofustjóra dags. 7.5.2025 með ítarlegri upplýsingum um biðtíma eftir skammtímadvölum.
Lagt fram
Fundargerð í átta liðum.
Lagt fram
9.3 - 2002676 - Aðgerðaáætlun velferðarsviðs 2025
Verkefnastjóri velferðarsviðs kynnir aðgerðaáætlun velferðarsviðs vegna ársins 2025.
Öldungaráð þakkar Jóhönnu Lilju Ólafsdóttur verkefnisstjóra velferðarsviðs góða kynningu á fyrirliggjandi aðgerðaráætlun velferðarsviðs vegna ársins 2025.
Öldungaráð telur nauðsynlegt að skoða aðgerðir til að rjúfa félagslega einangrun eldra fólks. Þekkt er að félagsleg einangrun er raunverulegt og alvarlegt vandamál í nútíma samfélögum og áhættuþáttur varðandi andlega og líkamlega heilsuskerðingu. Bent er sérstaklega á að úrræði skorti fyrir karlmenn, t.d. úrræði á borð við "Karlar í skúrum".
Öldungaráð skorar á bæjarstjórn að skoða möguleika á að koma upp úrræði á borð við "Karlar í skúrum" sem markvissa aðgerð til að rjúfa félagslega einangrun.
Velferðar- og mannréttindaráð tekur undir áskorun öldungaráðs til bæjarstjórnar að skoða möguleika á að koma upp úrræði á borð við "Karlar í skúrum" sem markvissa aðgerð til að rjúfa félagslega einangrun.
Sviðsstjóri kynnir starfið á velferðarsviði á milli funda velferðarráðs.