Velferðar- og mannréttindaráð - 21. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Björg Baldursdóttir - formaður
- Sigrún Bjarnadóttir - varaformaður
- Kristinn Jakobsson - aðalmaðurBoðaði forföllHaukur Már Hauksson - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Elísabet Berglind Sveinsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllGunnlaugur Auðunn Ragnarsson - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Hannes Þ. Hafstein Þorvaldsson - aðalfulltrúi
- Örn Arnarson - aðalfulltrúi
- Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir - aðalfulltrúi
- Thelma Bergmann Árnadóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Sigrún Þórarinsdóttir - Sviðsstjóri velferðarsviðs
- Jóhanna Lilja Ólafsdóttir - starfsmaður velferðarsviðs
Ritari
- Jóhanna Lilja Ólafsdóttir
Dagskrá fundar
Áfrýjun dags. 9.9.2026, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.
Fært í trúnaðarbók.
Lagðar fram til kynningar niðurstöður Gæða- og eftirlitsstofnunar dags. 25.6.2026.
Lagt fram.
Lagðar fram til kynningar niðurstöður Gæða- og eftirliltsstofnunar dags. 19.6.2026.
Lagt fram.
Áfrýjun dags. 17.9.2026, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.
Velferðar- og mannréttindaráð óskar eftir að ákvæði 23. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Kópavogsbæ séu skýrð í reglunum.
Fært í trúnaðarbók.
Áfrýjun dags. 21.9.2026, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.
Fært í trúnaðarbók.
Áfrýjun dags. 9.9.2026, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.
Fært í trúnaðarbók.
Áfrýjun dags. 3.9.2026, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.
Fært í trúnaðarbók.
Minnisblað skrifstofustjóra dags. 25.9.2026 um stöðu mála vegna samninga um samræmda móttöku flótafólks lagt fram til kynningar.
Lagt fram.
Bókun:
Miðflokkurinn telur mikilvægt að áður en tekin er ákvörðun um framlengingu Kópavogsbæjar á samningi um samræmda móttöku flóttafólks verði reynslan af núverandi samningi rýnd með heildstæðum hætti. Mikilvægt er að fyrir liggi greinargott mat á framkvæmd samningsins og áhrifum hans á sveitarfélagið, sérstaklega með tilliti til raunverulegs kostnaðar sveitarfélagsins og framlaga ríkisins, áhrifa á félagsþjónustu, húsnæðismál, skóla- og leikskólaþjónustu og aðra þjónustu sveitarfélagsins, mannafla og stjórnsýslu, sem og þess hvernig markmið samningsins hafa náðst. Með þetta að leiðarljósi telur Miðflokkurinn mikilvægt að ákvörðun um mögulega framlengingu verði byggð á slíkri rýni á núverandi samningi.
Thelma Bergmann Árnadóttir, áheyrnarfulltrúi Miðslokks.
Skrifstofustjóri kynnir starfsemi skrifstofunnar.
Velferðar- og mannréttindaráð þakkar fyrir góða kynningu.
Áfrýjun dags. 17.9.2026, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.
Fært í trúnaðarbók.
Áfrýjun dags. 16.9.2026, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.
Fært í trúnaðarbók.
Minnisblað dags. 25.9.2026 með uppfærðri stöðu biðlista eftir þjónustu fyrir börn og fjölskyldur og fullorðið fatlað fólk lagt fram til kynningar.
Velferðar- og mannréttindaráð þakkar fyrir góða kynningu.
Lagðar fram til kynningar tölulegar upplýsingar um starfsemi velferðarsviðs janúar til ágúst 2026.
Lagt fram.
Bókun:
Fulltrúar Samfylkingar og Viðreisnar skora á bæjarstjórn að leita leiða til þess að auka fjölda félagslegra íbúða og sértækra búsetu úrræða í bænum. Mikilvægt er að koma til móts við íbúa sem hafa miklar þjónustuþarfir og til að grynnka á biðlistum eftir félagslegu og búsetu úrræðum í bænum.
Örn Arnarson, aðalmaður Samfylkingar og Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir, aðalmaður Viðreisnar.
14
Umsögn til Alþingis vegna fjálagafrumvarps ársins 2027 og áhrif þess á framtíðar samþættrar þjónustu í þágu farsældar barna
Lögð fram til kynningar drög að umsögn til fjárlaganefndar Alþingis vegna farsældar barna dags. 22.9.2026.
Lagt fram.
Bókun:
Velferðar- og mannréttindaráð Kópavogs lýsir verulegum áhyggjum af því að sérstakt viðbótarfjármagn ríkisins til sveitarfélaga vegna innleiðingar og framkvæmdar farsældarlaganna falli niður samkvæmt fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi 2027.
Sveitarfélög hafa á undanförnum árum byggt upp þjónustu og tekið á sig lögbundnar skyldur með það að markmiði að börn og fjölskyldur fái snemmtækan, samfelldan og samþættan stuðning. Mikilvægt er að sú uppbygging glatist ekki og að tryggt verði að börn og fjölskyldur fái áfram þá þjónustu og stuðning sem farsældarlögunum er ætlað að tryggja.
Ráðið telur ótímabært að draga úr fjármögnun án þess að fyrir liggi heildstætt mat á raunverulegum kostnaði sveitarfélaga, ávinningi og árangri innleiðingarinnar. Ríkisendurskoðun hefur jafnframt bent á að innleiðingu og framkvæmd laganna hafi að ýmsu leyti verið ábótavant og að ekki séu enn fyrir hendi fullnægjandi forsendur til að ná meginmarkmiðum þeirra.
Velferðar- og mannréttindaráð hvetur því stjórnvöld til að endurskoða fyrirhugaða niðurfellingu framlagsins og tryggja áframhaldandi og fyrirsjáanlega fjármögnun. Samfella og stöðugleiki í þjónustu við börn og fjölskyldur er grundvallaratriði og mikilvægt að sú fjárfesting sem þegar hefur verið ráðist í fái tíma og svigrúm til að skila þeim samfélagslega ávinningi sem farsældarlögunum er ætlað að ná fram.
Björg Baldursdóttir, Sigrún Bjarnadóttir, Haukur Már Hauksson, Gunnlaugur Auðunn Ragnarsson, Hannes H Þorvaldsson og Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir.
Örn Arnarson og Thelma Bergmann Árnadóttir sitja hjá.
Sviðsstjóri kynnir starfið á velferðarsviði á milli funda velferðarráðs.