Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Velferðar- og mannréttindaráð - 14. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Björg Baldursdóttir - formaður
  • Svava Halldóra Friðgeirsdóttir - aðalmaður
  • Matthías Björnsson - aðalmaður
  • Hólmfríður Hilmarsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
  • Einar Örn Þorvarðarson - aðalmaður
  • Erlendur H. Geirdal - áheyrnarfulltrúi
  • Sigrún Bjarnadóttir - varaformaður

Starfsmenn

  • Sigrún Þórarinsdóttir - starfsmaður velferðarsviðs
  • Jóhanna Lilja Ólafsdóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Jóhanna Lilja Ólafsdóttir

Dagskrá fundar

01

Kynning á verkefninu Allir með

Að beiðni formanns velferðar- og mannréttindaráðs kynnir verkefnastjóri íþróttadeildar menntasviðs Kópavogs verkefnið "Allir með" sem snýr að aukinni þátttöku barna með fötlun í íþróttastarfi.

Velferðar- og mannréttindaráð þakkar fyrir góða kynningu.

02

Fjárhagsaðstoð. Áfrýjun

Áfrýjun dags. 19.1.2026, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.

Fært í trúnaðarbók.

03

Fjárhagsaðstoð. Áfrýjun

Áfrýjun dags. 27.1.2026, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.

Fært í trúnaðarbók.

04

Reglur um fjárhagsaðstoð

Lagðar fram til afgreiðslu breytingar á reglum Kópavogsbæjar um fjárhagsaðstoð.

Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrir sitt leyti breytingar á reglum um fjárhagsaðstoð og vísar þeim áfram til afgreiðslu í bæjarráði og staðfestingar í bæjarstjórn.

05

Kynning á skrifstofu barnaverndarþjónustu

Að beiðni formanns velferðar- og mannréttindaráðs kynnir skrifstofustjóri barnaverndarþjónustu Kópavogsbæjar verklag og framkvæmd eftirlits vegna barna sem vistuð eru utan heimilis á grundvelli barnaverndarlaga nr.80/2002.

Velferðar- og mannréttindaráð þakkar fyrir góða kynningu.

06

Bókun 622. fundar stjórnar SSH. Vegna bráða- og viðbragðsteymis barna og ungmenna

Lagður fram til afgreiðslu samstarfssamnningur sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu vegna miðlægs bráða-og viðbragðsteymis vegna ofbeldis meðal barna ásamt drögum að verklagsreglum teymisins.

Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagðan samstarfssamning ásamt verklagsreglum og vísar málinu til afgreiðslu í bæjarráði og staðfestingar í bæjarstjórn.

07

Tölulegar upplýsingar velferðarsviðs

Lagðar fram til kynningar tölulegar upplýsingar um starfsemi velferðarsviðs september til desember 2025.

Lagt fram.

08

Kynning á starfsemi velferðarsviðs

Sviðsstjóri kynnir starfið á velferðarsviði á milli funda velferðar- og mannréttindaráðs.