Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Velferðar- og mannréttindaráð - 4. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Björg Baldursdóttir - formaður
  • Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
  • Svava Halldóra Friðgeirsdóttir - aðalmaður
  • Matthías Björnsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Matthías Björnsson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Hólmfríður Hilmarsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
  • Einar Örn Þorvarðarson - aðalmaður
  • Erlendur H. Geirdal - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Erlendur H. Geirdal - vara áheyrnarfulltrúi
    Sat fundinn í staðinn

Starfsmenn

  • Sigrún Þórarinsdóttir - starfsmaður velferðarsviðs
  • Jóhanna Lilja Ólafsdóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Jóhanna Lilja Ólafsdóttir

Dagskrá fundar

01

EXIT - leið út úr afbrotum

Verkefnastjóri ríkislögreglustjóra kynnir samstarfsverkefnið EXIT - leið út úr afbrotum.

Velferðar- og mannréttindaráð þakkar fyrir góða kynningu og lýsir áhuga á að Kópavogsbær taki þátt í EXIT - samstarfsverkefninu.

02

Fjárhagsaðstoð. Áfrýjun

Áfrýjun dags. 3.4.2025, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.

Fært í trúnaðarbók.

03

Fjárhagsaðstoð. Áfrýjun

Áfrýjun dags. 27.3.2025, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.

Fært í trúnaðarbók.

04

Félagsleg leiguíbúð. Áfrýjun

Áfrýjun dags. 12.3.2025, ásamt þar tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.

Fært í trúnaðarbók.

05

Félagsleg leiguíbúð. Áfrýjun

Áfrýjun dags. 1.4.2025, ásamt þar tilgreindum fylgiskjölum er lögð fram til afgreiðslu.

Fært í trúnaðarbók.

06

Vanefndir leigutaka, meðferð mála.

Kynning um meðferð mála vegna vanefnda leigutaka.

Velferðar- og mannréttindaráð þakkar fyrir góða kynningu.

07

Áfrýjun vegna synjunar um akstursþjónustu

Áfrýjun dags. 26.3.2025, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.

Fært í trúnaðarbók.

08

Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks - 19. fundur frá 31.03.2025

Fundargerð í sjö liðum.

Lagt fram.

09

Tillaga til velferðar- og mannréttindaráðs varðandi kynjahlutföll í nefndum og ráðum á vegum bæjarins frá Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur aðalmanni Pírata í velferðar- og mannréttindaráði

Lögð fram tillaga ásamt greinargerð frá Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur um að velferðar- og mannréttindaráð Kópavogs taki til sérstakrar umfjöllunar kynjahlutföll í fastanefndum bæjarstjórnar, í ljósi þess að kynjahlutföll í að minnsta kosti þremur ráðum - menntaráði, skipulags- og umhverfisráði og velferðar- og mannréttindaráði - uppfylla ekki ákvæði 15. gr. jafnréttislaga nr. 150/2020. Einnig er lagt til að ráðið geri tillögu til bæjarráðs um viðeigandi úrbætur.

Velferðar- og mannréttindaráð Kópavogs tekur undir mikilvægi þess að kynjahlutföll í nefndum og ráðum á vegum bæjarins endurspegli ákvæði 28.gr. jafnréttislaga nr. 150/2020. Ráðið hvetur bæjarstjórn til að bregðast við þar sem við á.

10

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir aðalmaður Pírata í velferðar- og mannréttindaráði óskar eftir upplýsingum um viðaukabeiðnir

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir aðalmaður Pírata í velferðar- og mannréttindaráði óskaði eftir að lagðar væru fram þær viðaukabeiðnir sem farið hafa frá velferðarsviði til bæjarstjóra það sem af er kjörtímabili.

Velferðar- og mannréttindaráð vísaði málinu til úrvinnslu sviðsstjóra og er nú lagt fram minnisblað sviðsstjóra dags. 21.4.2025.

Lagt fram.

11

Börn með fjölþættan vanda - samkomulag um ábyrgðar og kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga

Samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um börn með fjölþættan vanda dags. 19.3.2025 lagt fram til kynningar

Lagt fram.

12

Styrkbeiðni frá Skjólinu

Lögð fram til afgreiðslu beiðni um rekstrarstyrk vegna ársins 2025 frá Skjólinu.

Velferðar- og mannréttindaráð frestar afgreiðslu á beiðni um rekstrarstyrk frá Skjólinu. Óskað er eftir ársreikningi frá rekstraraðila og yfirliti yfir fjölda íbúa frá Kópavogi sem sækja þjónustu í Skjólið.

13

Umsókn um rekstrarstyrk 2025

Lögð fram til afgreiðslu beiðni um rekstrarstyrk vegna ársins 2025 frá Matthildi, samtökum um skaðaminnkun.

Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir að veita Matthildi styrk að upphæð kr. 650.000- fyrir árið 2025 gegn framvísun ársreiknings.

14

Styrkbeiðni 2025

Lögð fram til afgreiðslu beiðni um rekstrarstyrk vegna ársins 2025 frá Klúbbnum Geysi.

Velferðar- og mannréttindaráð frestar afgreiðslu á beiðni um rekstrarstyrk frá Klúbbnum Geysi. Óskað er eftir umsögn frá velferðarsviði. Einnig er óskað eftir yfirliti yfir fjölda íbúa frá Kópavogi sem sækja þjónustu í Klúbbnum Geysi frá rekstraraðilanum.

15

Kynning á starfsemi velferðarsviðs

Sviðsstjóri kynnir starfið á velferðarsviði á milli funda velferðarráðs.