Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Tillaga til velferðar- og mannréttindaráðs varðandi kynjahlutföll í nefndum og ráðum á vegum bæjarins frá Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur aðalmanni Pírata í velferðar- og mannréttindaráði

Málsnúmer: 25041771

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1321. fundur

Lögð fram tillaga ásamt greinargerð frá Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur um að velferðar- og mannréttindaráð Kópavogs taki til sérstakrar umfjöllunar kynjahlutföll í fastanefndum bæjarstjórnar, í ljósi þess að kynjahlutföll í að minnsta kosti þremur ráðum - menntaráði, skipulags- og umhverfisráði og velferðar- og mannréttindaráði - uppfylla ekki ákvæði 15. gr. jafnréttislaga nr. 150/2020. Einnig er lagt til að ráðið geri tillögu til bæjarráðs um viðeigandi úrbætur.

02

Bæjarráð - 3214. fundur

Lagt fram.

03

Velferðar- og mannréttindaráð - 4. fundur

Lögð fram tillaga ásamt greinargerð frá Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur um að velferðar- og mannréttindaráð Kópavogs taki til sérstakrar umfjöllunar kynjahlutföll í fastanefndum bæjarstjórnar, í ljósi þess að kynjahlutföll í að minnsta kosti þremur ráðum - menntaráði, skipulags- og umhverfisráði og velferðar- og mannréttindaráði - uppfylla ekki ákvæði 15. gr. jafnréttislaga nr. 150/2020. Einnig er lagt til að ráðið geri tillögu til bæjarráðs um viðeigandi úrbætur.

Velferðar- og mannréttindaráð Kópavogs tekur undir mikilvægi þess að kynjahlutföll í nefndum og ráðum á vegum bæjarins endurspegli ákvæði 28.gr. jafnréttislaga nr. 150/2020. Ráðið hvetur bæjarstjórn til að bregðast við þar sem við á.