Velferðarráð - 106. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Björg Baldursdóttir - formaður
- Einar Örn Þorvarðarson - aðalmaður
- Erlendur H. Geirdal - áheyrnarfulltrúi
- Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
- Hólmfríður Hilmarsdóttir - aðalmaður
- Matthías Björnsson - aðalmaður
- Páll Marís Pálsson - aðalfulltrúi
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Sigrún Þórarinsdóttir - Sviðsstjóri velferðarsviðs
- Jóhanna Lilja Ólafsdóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Jóhanna Lilja Ólafsdóttir
Katrín María Lehmann, verkefnastjóri velferðarsviðs sat allan fundinn.
Dagskrá fundar
Stefnustjóri kynnir heildarstefnu Kópavogsbæjar.
Velferðarráð þakkar góða kynningu.
Gestir
- Auður Finnbogadóttir, stefnustjóri - mæting: 16:15
- Encho Plamenov Stoyanov, verkefnastjóri - mæting: 16:15
Verkefnastjóri á umhverfissviði og stefnustjóri kynna drög að loftslagsstefnu Kópavogsbæjar.
Velferðarráð þakkar góða kynningu.
Gestir
- Auður Finnbogadóttir, stefnustjóri - mæting: 16:15
- Encho Plamenov Stoyanov, verkefnastjóri - mæting: 16:15
Verkefnastjóri velferðarsviðs kynnir nýútkomna ársskýrslu velferðarsviðs fyrir árið 2021.
Velferðarráð þakkar góða kynningu og fagnar rafrænni ársskýrslu. Velferðarráð leggur til að upplýsingar um stöðu biðlista er varða þjónustu sviðsins verði jafnframt birtar í ársskýrslum velferðarsviðs.
Lagt fram til upplýsingar.
Lagt fram.
Gestir
- Rannveig María Þorsteinsdóttir, deildarstjóri - mæting: 17:08
- Anna Eygló Karlsdóttir, deildarstjóri - mæting: 17:08
Umsókn dags. 26.07.2022, ásamt þar til greindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.
Velferðarráð samþykkir að veita leyfi til starfa sem stuðningsfjölskylda. Fært í trúnaðarbók.
Drög að breytingum á reglum Kópavogsbæjar um sérstakan húsnæðisstuðning lögð fram til afgreiðslu. Með fylgir greinargerð deildarstjóra og lögfræðings dags. 8.9.2022 ásamt þar til greindum fylgiskjölum.
Velferðarráð samþykkir framlagðar breytingar á reglum fyrir sitt leyti.
Gestir
- Atli Sturluson, deildarstjóri - mæting: 17:01
Deildarstjórar Barnaverndar og Ráðgjafar- og íbúðadeildar kynna starfsemi deildanna.
Velferðarráð þakkar góðar kynningar.
Gestir
- Rannveig María Þorsteinsdóttir, deildarstjóri - mæting: 17:08
- Anna Eygló Karlsdóttir, deildarstjóri - mæting: 17:08