Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Velferðarráð - 99. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Baldur Þór Baldvinsson - aðalmaður
  • Björg Baldursdóttir - aðalmaður
  • Donata Honkowicz Bukowska - aðalmaður
  • Einar Örn Þorvarðarson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Theódóra S Þorsteinsdóttir - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Halla Kari Hjaltested - aðalmaður
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - formaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
  • Sigurlaug Kristín Sævarsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Anna Klara Georgsdóttir - Yfirmaður þjónustudeildar aldraðra
  • Sigrún Þórarinsdóttir - Sviðsstjóri velferðarsviðs

Ritari

  • Anna Klara Georgsdóttir

Dagskrá fundar

Ráðgjafa og íbúðadeild

01

Teymisfundir

Fundargerðir 8.-11. fundar lagðar fram til upplýsingar.

Lagt fram.


Gestir

  • Rannveig María Þorsteinsdóttir, deildarstjóri - mæting: 16:15
Önnur mál

02

Aðgerðaáætlun velferðarsviðs

Staða aðgerðaáætlunar. Kynning og umræður.

Lagt fram.

Velferðarráð fagnar því hversu hratt og vel hefur gengið að vinna að aðgerðaáætluninni. Ráðið vill þó leggja áherslu á mikilvægi þess að dagdvöl fyrir aldraða og skammtímadvöl fyrir fötluð börn komist á laggirnar strax í upphafi næsta árs.

Rúmlega 100 Kópavogsbúar eru á biðlista eftir dagþjálfun fyrir aldraða og þolir málið því ekki bið. Ráðsmenn í velferðarráði tóku út húsnæði í bæjarfélaginu í samstarfi við starfsmenn velferðar- og umhverfissviðs í því skyni að finna úrræðinu hentugt húsnæði árið 2020. Var þá niðurstaðan sú að félagsmiðstöðin í Gjábakka hentaði best fyrir dagdvöli. Óskað er eftir skýrum svörum frá umhverfissviði um hvort það húsnæði sé ekki lengur fýsilegur kostur og þá hvaða húsnæði komi betur til greina.