Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Velferðarráð - 121. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Björg Baldursdóttir - formaður
  • Einar Örn Þorvarðarson - aðalmaður
  • Erlendur H. Geirdal - áheyrnarfulltrúi
  • Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
  • Hólmfríður Hilmarsdóttir - aðalmaður
  • Matthías Björnsson - aðalmaður
  • Páll Marís Pálsson - aðalfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Sigrún Þórarinsdóttir - Sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Jóhanna Lilja Ólafsdóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Jóhanna Lilja Ólafsdóttir

Dagskrá fundar

01

Fjárhagsaðstoð. Áfrýjun

Áfrýjun dags. 2.6.2023, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.

Fært í trúnaðarbók.

02

Kæra nr. 174-2023. Félagslegt leiguhúsnæði

Úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála nr. 174/2023, dags. 11.5.2023, lagður fram til kynningar.

Lagt fram.

03

Kynning frá skrifstofu félagslegs húsnæðis

Kynning á tölulegum upplýsingum frá skrifstofustjóra á skrifstofu félagslegs húsnæðis.

Lagt fram.

04

Tölulegar upplýsingar velferðarsviðs

Lagðar fram til kynningar tölulegar upplýsingar um starfsemi velferðarsviðs janúar til apríl 2023.

Lagt fram.

05

Kynning á starfsemi velferðarsviðs

Sviðsstjóri kynnir starfið á velferðarsviði á milli funda velferðarráðs.

06

Aðgerðaáætlun velferðarsviðs 2023

Kynning á stöðu aðgerða í aðgerðaáætlun velferðarsviðs 2023 til uppfyllingar stefnu velferðarsviðs.

Lagt fram.

07

Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks - 13. fundur frá 30.05.2023

Fundargerð í fimm liðum.


7.3 - 23051835 - Tillaga að ályktun vegna ákvæða byggingareglugerðar frá fulltrúa í notendaráði

Með tölvupósti dags. 1. maí 2023 óskaði Ingveldur Jónsdóttir fulltrúi í notendaráði eftir því að eftirfarandi tillaga að ályktun notendaráðs yrði lögð fyrir fund ráðsins ásamt greinargerð.

"Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi krefst þess að ákvæði um hámarks fjarlægð milli bílastæða hreyfihamlaðra og inngangs húss verði sett aftur inn í byggingareglugerð þegar í stað."

Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi krefst þess að ákvæði um hámarks fjarlægð milli bílastæða hreyfihamlaðra og inngangs húss verði sett aftur inn í byggingareglugerð þegar í stað.

Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks hvetur bæjaryfirvöld í Kópavogi til fara að ákvæði um hámarks fjarlægð milli bílastæða hreyfihamlaðra og inngangs húss þrátt fyrir að ákvæðið um hámarksfjarlægð hafi fallið úr byggingarreglugerð með breytingum dags. 3. maí 2016.

Velferðarráð tekur undir bókun Notendaráðs í málefnum fatlaðs fólks frá fundi ráðsins dags. 30.05.23.



7.4 - 23052163 - Aðgengismál um þveranir gatna til notendaráðs fatlaðs fólks frá íbúa Kópavogs

Erindi frá íbúa Kópavogsbæjar um aðgengismál í Kópavogi dags. 29. maí 2023 lagt fram til kynningar og umræðu.

Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks bókaði á fundi sínum þann 12.11.2020 um sama mál og vekur aftur athygli á að huga þarf betur að niðurtektum á gönguþverunum í Kópavogsbæ.

Velferðarráð tekur undir bókun Notendaráðs í málefnum fatlaðs fólks frá fundi ráðsins dags. 30.05.23 og óskar eftir að tryggt verði að viðeigandi aðilar á umhverfissviði Kópavogsbæjar verði upplýstir um málið.


08

Öldungaráð - 22. fundur frá 23.05.2023

Fundargerð í þremur liðum.