2. bekkur
Veljið viðeigandi matstæki og viðmið hér fyrir ofan, þá birtast hér að neðan leiðir sem hægt er að nýta í íhlutun.
Listinn yfir leiðir er ekki tæmandi en leitast var við að velja inn verkfæri sem flestir hafa aðgang að.
Kynna skal niðurstöður allra skimana, stöðu- og framvinduprófa fyrir foreldrum og veita þeim viðeigandi ráðleggingar um hvernig þeir geta stutt við læsisnám og málþroska barnsins.
Matstæki
Hvað er metið?
Færni í sjálfvirkum, nákvæmum og fyrirhafnarlausum lestri.
Fyrir hverja?
Alla nemendur
Tímabil
September, janúar og maí. Fyrirlögn í september er hugsuð sem grunnmæling hjá nemendum í 1. bekk.
Ábyrgðaraðili
Deildarstjóri stoðþjónustu ber ábyrgð á framkvæmd, þ.e. að prófið sé lagt fyrir og að niðurstöður séu nýttar til að skipuleggja íhlutun. Umsjónarkennari, sérkennari eða annar kennari skólans sér um fyrirlögn.
Hvað er metið?
Færni í sjálfvirkum, nákvæmum og fyrirhafnarlausum lestri orða.
Fyrir hverja?
Lagt fyrir alla nemendur sem fá mælitölur á bilinu 1-7 á lesfimiprófi.
Tímabil
September, janúar og maí.
Ábyrgðaraðili
Deildarstjóri stoðþjónustu ber ábyrgð á framkvæmd, þ.e. að prófið sé lagt fyrir og að niðurstöður séu nýttar til að skipuleggja íhlutun. Umsjónarkennari, sérkennari eða annar kennari skólans sér um fyrirlögn.
Hvað er metið?
Þekkingu á tengslum bókstafs og hljóðs. Prófið gefur vísbendingar um hvort nemandi geti beitt hljóðaaðferðinni og umskráð texta af öryggi.