Beint í efni

Barn­vænt sveit­ar­fé­lag

Kópavogsbær hefur innleitt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna inn í stjórnsýslu og starfsemi sveitarfélagsins.

Í tengslum við innleiðinguna hafa fjölmörg verkefni litið dagsins ljós svo sem Okkar skóli, Barnaþing, samráð í skipulagsmálum og mælaborð barna.

Kópavogur fékk viðurkenningu UNICEF árið 2021 sem Barnvænt sveitarfélag. Viðurkenningin var endurnýjuð vorið 2024.

Hvað er barn­vænt sveit­ar­fé­lag?

Barnvænt sveitafélag er samfélag sem stýrt er af sveitar- eða bæjarstjórn með það að markmiði að bæta aðstæður barna og tryggja að ávallt sé tekið tillit til réttinda þeirra. Börn koma að ýmissi ákvarðanatöku er varða þeirra málefni.

Hugmyndafræði barnvænna sveitarfélaga byggir á alþjóðlegu verkefni UNICEF. Fjölmörg sveitarfélög víðsvegar um heiminn hafa innleitt þessa hugmyndafræði.

Barna­sátt­máli Sam­ein­uðu þjóð­anna

Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna varð að lögum árið 1990. Allar þjóðir heims, að undanskildum Bandaríkjunum, hafa samþykkt sáttmálann sem samanstendur af 54 greinum um réttindi barna.

Barnasáttmálinn var lögfestur á Íslandi 2013.

Barnasáttmálinn var fullgiltur fyrir Íslands hönd árið 1992. Fullgilding sáttmálans felur í sér að Ísland er skuldbundið af þjóðarétti til að virða og uppfylla ákvæði sáttmálans.