Beint í efni

Far­sæld barna

Samþætt þjónusta í þágu farsældar barna sem tryggir að börn og fjölskyldur falli ekki á milli kerfa.

Sam­þætt þjón­usta í þágu far­sældar barna

Börn og foreldrar eiga að hafa aðgang að samþættri þjónustu við hæfi og án hindrana. Samþætt þjónusta er skipulögð og samfelld og hefur það markmið að styðja farsæld barns. Hún skapar einnig heildarsýn og ramma um þau þjónustukerfi sem skipta mestu máli.

Samþætting þjónustu felur ekki í sér ný úrræði. Hún snýst um hvernig ólíkir þjónustuaðilar vinna saman að málum barna og fjölskyldna. Lögð er áhersla á að leita sameiginlegra lausna sem mæta þörfum hverju sinni.

Markmiðin með samþættingu þjónustu er að samstarf í kringum börn og fjölskyldur sé í skýrum farvegi og tryggt að barnið sé hjartað í kerfinu.

Nán­ari upp­lýs­ingar

Samþætting þjónustu er unnin samkvæmt lögum um farsæld barna sem tóku gildi 1. janúar 2022. Innleiðing laganna stendur til loka árs 2026.

Kópavogsbær gætir að öryggi persónuupplýsinga samkvæmt gildandi lögum og reglum. Allt starfsfólk sem kemur að vinnslu persónuupplýsinga er bundið þagnarskyldu.

Farsæld barna - Kópavogsbær