Beint í efni

Heim­greiðslur

Heimgreiðslum er ætlað að brúa bilið frá því að fæðingarorlofi lýkur þar til barn fær pláss hjá dagforeldri eða í leikskóla.

Fæ ég heim­greiðslur?

Heimgreiðslur eru fyrir foreldra eða forsjáraðila sem sjá sjálfir um
umönnun barns meðan beðið er eftir plássi í dagvistun.

Til að fá heimgreiðslur þarf:

  • Barn að vera með lögheimili í Kópavogi.
  • Barn að vera 15 mánaða eða eldra.
  • Barn að vera hvorki í leikskóla né hjá dagforeldri.
  • Barn að njóta ekki annarra niðurgreiðslna frá Kópavogsbæ vegna dvalar.

Hvern­ig sæki ég um?

Sótt er um heimgreiðslur á Minn Kópavogur.

Athugið:

  • Umsókn þarf að berast fyrir 20. dag mánaðar til að taka gildi frá næstu mánaðamótum.
  • Aðeins þarf að sækja um einu sinni.
  • Heimgreiðslur eru ekki afturvirkar.

Upp­hæð og greiðslur

Heimgreiðslur eru 115.810 kr. á mánuði (frá 1. janúar 2026).

Greiðslur:

  • Hefjast frá næstu mánaðamótum eftir að barn verður 15 mánaða.
  • Eru greiddar eftirá.
  • Eru að hámarki greiddar í 11 mánuði á ári.
  • Eru ekki greiddar fyrir júlí.

Greiðslur falla niður þegar:

  • Barn byrjar hjá dagforeldri eða í leikskóla.
  • Foreldrar hafna leikskólaplássi fyrir barn 30 mánaða eða eldra.
  • Lögheimili barns flyst úr Kópavogi.

Heimgreiðslur eru greiddar sem styrkur og eru ekki skattskyldar.

Heimgreiðslur - Kópavogsbær