Leikskólar
Leikskólar eru fyrsta skólastigið og leggja grunn að námi og þroska barna í gegnum leik, samskipti og skapandi starf.
Í Kópavogi starfa 23 leikskólar, þar af einn þjónusturekinn og tveir einkareknir.
Umsóknarferlið
Úthlutanir fara fram á tímabilinu mars til maí.
Sótt er um leikskólapláss í leikskólakerfinu Völu.
Mikilvægt er að umsókn berist fyrir 1. mars árið sem óskað er eftir leikskólaplássi.
- Skráðu þig inn á umsóknarvef Völu með rafrænum skilríkjum.
- Veldu allt að fimm leikskóla.
- Settu þann leikskóla sem þú vilt helst í 1. sæti, næsta í 2. sæti og svo framvegis.
- Sendu inn umsókn.
Börn fara á biðlista eftir aldri (fæðingardegi).
- Hægt er að velja allt að fimm leikskóla.
- Ef barn fær ekki pláss í fyrsta vali getur það fengið boð í annan leikskóla á listanum.
- Ef ekki er pláss í þeim leikskólum sem valdir voru getur barn fengið boð um pláss í öðrum leikskóla sem var ekki á listanum.
- Reynt er að taka tillit til ef barn á systkini í sama leikskóla.
- Ef barn fær pláss í öðrum leikskóla en óskað var eftir er hægt að sækja um flutning síðar.
Í ákveðnum tilvikum er hægt að sækja um forgang, til dæmis fyrir:
- Börn 4–5 ára.
- Börn með fötlun eða þroskaraskanir.
- Langveik börn.
- Börn í erfiðum aðstæðum.
- Börn starfsfólks leikskóla.
Leikskólar Kópavogs
Stuðla að því að börn fái notið styrkleika sinna, geti tekið þátt í leik og námi á eigin forsendum í hvetjandi, skapandi og nærandi umhverfi.
Velferð barna • Leikur og nám • Öryggi og þroski
Dvölin í leikskólanum
Leikskólar í Kópavogi eru opnir frá kl. 7.30 til 16.30 á virkum dögum.
Dvalartími barna getur verið mismunandi eftir þörfum fjölskyldna og er skráður í leikskólakerfinu Völu.
Gott að vita:
- Leikskóladvöl er gjaldfrjáls ef hún er 30 klukkustundir eða minna á viku.
- Þið ákveðið sjálf hvernig þið dreifið þessum 30 klukkustundum yfir vikuna.
- Aðeins er greitt fyrir fæði ef dvalartími er 30 klukkustundir eða minna á viku.
- Börn þurfa að mæta fyrir kl. 9:00.
- Lágmarksdvöl eru 4 klukkustundir á dag.
- Hægt er að velja dvöl 4 daga í viku.
- Dvalartími er skráður í 15 mínútna einingum eða heilum klukkustundum.
Breytingar á dvalartíma:
- Beiðni er skráð í Völu og þarf samþykki leikskólastjóra.
- Yfirleitt er miðað við að dvalartími haldist óbreyttur í 2–3 mánuði.
Ef þörf er á tímabundinni breytingu, til dæmis vegna fæðingarorlofs eða atvinnumissis, er reynt að koma til móts við það.
Gagnkvæmur uppsagnarfrestur er einn mánuður og miðast við fyrsta eða fimmtánda dag mánaðar.
Uppsögn á leikskóladvöl skal berast leikskólastjóra.
Ef leikskólagjöld eru í vanskilum í þrjá mánuði eða lengur getur leikskóladvöl verið sagt upp. Hægt er að hafa samband við innheimtudeild vegna greiðslusamkomulags.
Í leikskólum starfa sérkennslustjórar sem veita ráðgjöf til foreldra og starfsfólks.
Önnur sérfræðiþjónusta er veitt í gegnum leikskóladeild menntasviðs Kópavogs, til dæmis frá:
- Sálfræðingum
- Iðjuþjálfum
- Talmeinafræðingum
- Sérkennsluráðgjöfum
Í Völu geta foreldrar fylgst með degi barnsins.
Þar getur þú meðal annars:
- Séð dagskrá.
- Fylgst með svefni og mat.
- Skoðað matseðil.
- Séð dagatal.
- Sent skilaboð.
- Skráð forföll.
Vala er aðgengileg í vafra og appi á íslensku, ensku og pólsku.Innskráning fer fram með rafrænum skilríkjum.
Á skráningardögum er vistun valkvæð og leikskólagjöld felld niður nema fyrir þau börn sem eru skráð í dvöl.
Skólastarfið er einfaldað á skráningardögum og eru ávallt opnir að minnsta kosti tveir leikskólar fyrir börn sem eru skráð.
Breytilegt er hvaða leikskólar eru opnir hverju sinni en tryggt er að það sé bæði í efri og neðri hverfum bæjarins.
Mönnun er skipulögð þannig að starfsfólk úr leikskóla barnsins mun starfa í þeim leikskólum sem verða opnir og þekkir þarfir barnsins.
Tímabil skráningardaga eru í:
- Október – á sama tíma og vetrarleyfi grunnskóla.
- Desember/janúar – yfir jól og áramót.
- Febrúar – á sama tíma og vetrarleyfi grunnskóla.
- Mars/apríl – í dymbilviku / dagana í vikunni fyrir páska.
Við veðurviðvaranir fylgja leikskólar leiðbeiningum almannavarna og Veðurstofu Íslands.
Barn sem flytur milli sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu getur haldið leikskólaplássi sínu í allt að 12 mánuði eftir flutning lögheimilis, eða þar til nýtt pláss fæst í nýja sveitarfélaginu.
Sækja þarf um:
- Leikskólapláss í nýju sveitarfélagi.
- Framlengda dvöl í því sveitarfélagi sem flutt er frá.
Börn á lokaári leikskóla geta lokið leikskólagöngu sinni í sama leikskóla.
Leikskólar Kópavogs

Aðalþing
Aðalþing 2
Sími: 515 0930
Hafa sambandSkólastjóri: Agnes Gústafsdóttir

Arnarsmári
Arnarsmári 34
Sími: 441 5300
Hafa sambandSkólastjóri: Bryndís Baldvinsdóttir

Austurkór
Austurkór 1
Sími: 441 5100
Hafa sambandSkólastjóri: Lilja Vattnes Bryngeirsdóttir

Álfaheiði
Álfaheiði 46
Sími: 441 5400
Hafa sambandSkólastjóri: Anna Rósa Sigurjónsdóttir

Álfatún
Álfatún 2
Sími: 441 5500
Hafa sambandSkólastjóri: Heiðbjört Gunnólfsdóttir

Barnaskóli Kársness
Skólagerði 8
Sími: 441 7000
Hafa sambandSkólastjóri: Gerður Magnúsdóttir

Baugur
Baugakór 36
Sími: 441 5600
Hafa sambandSkólastjóri: Margrét Björk Jóhannesdóttir

Dalur
Funalind 4
Sími: 441 6000
Hafa sambandSkólastjóri: Ragnheiður Ósk Jensdóttir

Efstihjalli
Efstahjalli 20
Sími: 441 6100
Hafa sambandSkólastjóri: Lena Sólborg Valgarðsdóttir

Fagrabrekka
Fagrabrekka 26
Sími: 441 6200
Hafa sambandSkólastjóri: Egill Óskarsson

Fífusalir
Salavegur 4
Sími: 441 5200
Hafa sambandSkólastjóri: Erla Stefanía Magnúsdóttir

Furugrund
Furugrund 1
Sími: 441 6300
Hafa sambandSkólastjóri: Eva Sif Jóhannsdóttir

Grænatún
Grænatún 3
Sími: 441 6400
Hafa sambandSkólastjóri: Edda Guðrún Guðnadóttir

Kópahvoll
Bjarnhólastíg
Sími: 441 6500
Hafa sambandSkólastjóri: Halla Ösp Hallsdóttir

Kópasteinn
Hábraut 5
Sími: 441 5700
Hafa sambandSkólastjóri: Margrét Stefanía Lárusdóttir

Kór
Baugakór 25
Sími: 570 4940
Hafa sambandSkólastjóri: Svanhildur Dóra Björgvinsdóttir

Lækur
Dalsmári 21-25
Sími: 441 5900 / 840 2685
Hafa sambandSkólastjóri: Anna Guðrún Maríasdóttir

Marbakki
Marbakkabraut 4
Sími: 441 5800
Hafa sambandSkólastjóri: Alda Agnes Sveinsdóttir

Núpur
Núpalind 3
Sími: 441 6600 / 840 2683
Hafa sambandSkólastjóri: Svana Kristinsdóttir

Rjúpnahæð
Rjúpnasalir 3
Sími: 441 6700
Hafa sambandSkólastjóri: Helga Margrét Þorsteinsdóttir

Sólhvörf
Álfkonuhvarf 17
Sími: 441 7700
Hafa sambandSkólastjóri: Dóra Margrét Guðmundsdóttir

Urðarhóll
Kópavogsbraut 19
Sími: 441 5000
Hafa sambandSkólastjóri: Rebekka Gylfadóttir

Waldorfleikskólinn Ylur
Lækjarbotnaland 53 (206 Kópavogur)
Sími: 587 4499
Hafa sambandSkólastjóri: Auður Eysteinsdóttir
Kópavogsmódelið
Gjaldfrjáls leikskóladvöl í allt að 30 klukkustundir á viku
með sveigjanlegum dvalartíma.
Leikskólagjöld og afslættir
Gjaldskrá
Allar gjaldskrár Kópavogsbæjar eru birtar með fyrirvara um villur. Reiknivél leikskólagjalda er í vinnslu.
Leikskólagjöld
Í samræmi við samþykkt bæjarráðs 6. júlí 2023 tekur gjaldskráin breytingum fjórum sinnum á ári. Breytingar hverju sinni taka mið af þróun á undirliggjandi vísitölum.
Leikskólagjöld eru innheimt frá og með þeim degi sem vistun barns hefst, óháð aðlögunartíma. Nánari upplýsingar um innritun og fleira má finna í reglum um innritun leikskóla.
Gjaldskrá tekur gildi 1. október 2026
Fæðisgjöld
Verð | |
|---|---|
Hádegisverður | 9.140 kr. |
Hressing | 3.145 kr. |
Fullt fæði | 12.285 kr. |
Almennt gjald
Dvalarstundir | Dvalargjald | Með fullu fæði |
|---|---|---|
4,0 | 0 | 12.285 kr. |
4,5 | 0 | 12.285 kr. |
5,0 | 0 | 12.285 kr. |
5,5 | 0 | 12.285 kr. |
6,0 | 0 | 12.285 kr. |
6,5 | 28.126 kr. | 40.411 kr. |
7,0 | 30.289 kr. | 42.574 kr. |
7,5 | 37.858 kr. | 50.143 kr. |
8,0 | 45.436 kr. | 57.721 kr. |
8,5 | 55.919 kr. | 68.204 kr. |
9,0 | 78.048 kr. | 90.333 kr. |
Tekjutengdir afslættir
Einstæðir | Í sambúð | |||
|---|---|---|---|---|
Tekjuviðmið | Afsláttur | Tekjuviðmið | Afsláttur | |
0 kr. - 558.129 kr. | 50% | 0 kr. - 800.794 kr. | 50% | |
558.130 kr. - 909.994 kr. | 40% | 800.795 kr. - 1.189.060 kr. | 40% | |
909.995 kr. - 958.528 kr. | 30% | 1.189.061 kr. - 1.237.592 kr. | 30% | |
958.529 kr. - 1.007.059 kr. | 20% | 1.237.593 kr. - 1.286.124 kr. | 20% | |
1.007.060 kr. - 1.055.592 kr. | 10% | 1.286.125 kr. - 1.334.658 kr. | 10% |
Hægt er að sækja um tekjutengdan afslátt á umsóknarvef. Umsókn um afslátt þarf að berast fyrir 20. dag mánaðar til þess að taka gildi frá og með næstu mánaðarmótum á eftir. Afsláttur er ekki veittur afturvirkt. Frekari upplýsingar um tekjutengdan afslátt er að finna í reglum um tekjutengdan afslátt.
Starfmannaafsláttur
Starfsfólk í leikskólum í 75% eða hærra starfshlutfalli á rétt á 40% starfsmannaafslætti.
Systkinaafsláttur
Systkinaafsláttur reiknast ofan á tekjutengdan afslátt þegar við á.
Systkinaafsláttur fer eftir fjölda yngri systkina. Systkinaafsláttur hækkaði, frá 1.október 2025, úr 30% í 50% af dvalargjaldi ef barn á eitt yngra systkini, en 100% af dvalargjaldi ef barn á tvö yngri systkini eða fleiri í leikskóla eða í dvöl hjá dagforeldri. Systkinaafsláttur reiknast af dvalargjaldi eldri systkina. Systkinaafsláttur reiknast ofan á aðra afslætti. Ekki er veittur afsláttur af fæðisgjöldum. Ekki þarf að sækja um systkinaafslátt.
Dæmi um dvalargjöld með afslætti án fæðis
Dvalarstundir | Fullt dvalargjald | 50% | 40% | 30% | 20% | 10% |
|---|---|---|---|---|---|---|
4,0 | 0 | |||||
4,5 | 0 | |||||
5,0 | 0 | |||||
5,5 | 0 | |||||
6,0 | 0 | |||||
6,5 | 28.126 | 14.063 | 16.875 | 19.688 | 22.500 | 25.313 |
7,0 | 30.289 | 15.145 | 18.173 | 21.202 | 24.231 | 27.260 |
7,5 | 37.858 | 18.929 | 22.715 | 26.500 | 30.286 | 34.072 |
8,0 | 45.436 | 22.718 | 27.262 | 31.805 | 36.349 | 40.892 |
8.5 | 55.919 | 27.959 | 33.551 | 39.143 | 44.735 | 50.327 |
9,0 | 78.048 | 39.024 | 46.829 | 54.634 | 62.439 | 70.244 |
Allar gjaldskrár Kópavogsbæjar eru birtar með fyrirvara um villur.
Framlög til sjálfstætt starfandi leikskóla
Gjaldskrá gildir frá apríl 2026
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkir að greiða framlag í 11 mánuði á ári vegna dvalar barna í sjálfstætt starfandi leikskólum. Ekki er greitt fyrir sumarleyfismánuði, júlí eða ágúst.
Skilyrði fyrir greiðslu framlags vegna barna í sjálfstætt starfandi leikskóla eru eftirfarandi:
- Barn sé með lögheimili í Kópavogi
- Barn sé slysatryggt í leikskólanum
- Viðkomandi leikskóli hafi fullgilt rekstrarleyfi og uppfylli lög um leikskóla reglugerð og vinni samkvæmt aðalnámskrá leikskóla
- Barn njóti ekki annarra niðurgreiðslna vegna vistunar barnsins
Framlög til sjálfstætt starfandi leikskóla taka mið af viðmiðunargjaldskrá Sambands íslenskra sveitarfélaga. Viðmiðunargjaldskráin sýnir brúttótölur og frá þeim dragast leikskólagjöld viðkomandi leikskóla. Ef leikskólagjöld viðkomandi leikskóla eru lægri en leikskóla Kópavogs skal miða við leikskólagjöld Kópavogs við útreikning framlags.
Framlög eru greidd samkvæmt reikningi þar sem fram kemur nafn barns, kennitala, heimilisfang, leikskólagjöld og dvalartími ásamt staðfestingu foreldris/forráðamanns.
Greiðslur geta hafist þegar barn hefur náð tíu mánaða aldri en sex mánaða aldri ef foreldri einstætt.
Einstæðir foreldrar, námsmenn þar sem báðir foreldrar eru í fullu námi og öryrkjar með metna örorku (75% eða meira) greiða lægra gjald og er framlag Kópavogsbæjar því hærra í þeim tilvikum.
Námsmenn þurfa að framvísa vottorði til staðfestingar um námsárangur eftir hverja önn og er afsláttur leiðréttur eftirá fyrir hverja önn. Afsláttur til námsmanna gildir ekki 1. júní til 31. ágúst, nema foreldrar séu í fullu sumarnámi.
Samþykkt í bæjarstjórn Kópavogs, nóvember 2023
Reiknivél leikskólagjalda
Hvað kostar dvöl í leikskóla í Kópavogs? Settu inn hvað þú þarft margra tíma dvöl á hverjum degi fyrir barnið þitt og sjáðu hver leikskólagjöldin verða. Athugið að ekki þarf að hafa dvalartíma jafn langan alla daga en skráður dvalartími getur ekki hafist seinna en 09:00 á degi hverjum.
Systkinaafsláttur
- Systkinaafsláttur reiknast af dvalargjöldum en ekki fæðisgjöldum. Systkinaafsláttur fer eftir fjölda yngri systkina.
- Við útreikning á systkinaafslætti leikskólabarna eru talin með öll yngri systkini sem eru í leikskóla eða hjá dagforeldri.
- Systkinaafsláttur í leikskóla er 50% ef barn á eitt yngra systkin, en 100% ef barn á tvö yngri systkini eða fleiri á leikskóla eða í dvöl hjá dagforeldri.
- Systkinaafsláttur í frístund grunnskóla er 30% ef barn á eitt yngra systkin, 75% ef barn á tvö yngri systkini og 100% ef barn á þrjú yngri systkini eða fleiri sem eru í frístund, leikskóla eða hjá dagforeldri.
- Systkinaafsláttur er eini afslátturinn sem reiknast ofan á aðra afslætti.
- Ekki þarf að sækja sérstaklega um systkinaafslátt þar sem hann reiknast sjálfkrafa í skráningarkerfinu Völu sem heldur utan um skráningar barna hjá dagforeldrum, sem og í leikskóla og frístund.
Tekjutengdur afsláttur
Sjá nánar í gjaldskrá hér fyrir neðan.
Fæðisgjöld
Sjá nánar í gjaldskrá hér fyrir neðan.
Dvalartími
Bent er á að hægt er að hafa mismunandi dvalartíma milli daga og að öll stytting á dvalartíma kemur til lækkunar á leikskólagjöldum. Útreikningur leikskólagjalda byggir á nákvæmu meðaltali dvalartíma á dag og geta dvalargjöld því verið milli gjaldflokka eins og þeir birtast í gjaldskrá.
Dvalartími mismunandi milli daga
Foreldrar geta óskað eftir að barn sé í dvöl 4 daga í viku í stað 5 daga. Foreldrar geta ekki valið 4 daga dvöl í Völu eða reiknivél heldur þurfa foreldrar að senda á viðkomandi leikskólastjóra ósk um 4 daga dvöl sé þess óskað.
Fyrirvari. Athugið að útreikningar í reiknivél eru birtir með fyrirvara um mögulegar villur. Ef um misræmi er að ræða gilda upplýsingar í gjaldskrá.
Skóladagatal
Ítarleg skóladagatöl má nálgast á heimasíðum leikskólanna.
Smelltu á skjal til að hlaða niður dagatali fyrir þinn leikskóla
Reglur og verklag
- Aðalnámskrá
- Námskrá leikskóla Kópavogs
- Næringarstefna leikskóla Kópavogsbæjar
- Umhverfisstefna leikskólanna
- Reglur um innritun og dvöl barna
- Reglur um tekjutengda afslætti
- Skemmtilegar leikskólalóðir
- Röskun vegna veðurs
- Viðmið um myndbirtingar
- Verklagsreglur um ofbeldi, vanrækslu og áhættuhegðun barna
- Viðmið um flýtingar og seinkanir barna
- Málsmeðferð gagnvart starfsmanni vegna gruns um brot gegn barni
- Umsókn um skráningu barns í dvöl yfir jól og áramót 2026
Ábendingar og fyrirspurnin
Nánari upplýsingar veitir innritunarfulltrúi leikskóla.