Beint í efni

Síma­frí í skóla- og frí­stunda­starfi

Sáttmáli um símafrí í skóla- og frístundastarfi í Kópvogi hefur verið samþykktur að undangengnu samráði við nemendur, foreldra og fagfólk í grunnskólum í Kópavogi.

Í sáttmálanum felst meðal annars að símar eru ekki sýnilegir í skóla- og frístundastarfi og frímínútur verða skjálausar.

Símafrí í skóla- og frístundastarfi
Símafrí í skóla- og frístundastarfi

Sátt­mál­inn

Markmið sáttmálans er að skapa öruggt og félagslega sterkt skóla- og frístundaumhverfi þar sem nemendur fá tækifæri til þess að einbeita sér að námi, samskiptum og vellíðan.

Sáttmálinn er sameiginleg yfirlýsing skólasamfélags Kópavogs og byggir á trausti, samvinnu og ábyrgð í símanotkun. Nemendur, foreldrar, starfsfólk og stjórnendur sammælast um símafrí með það að markmiði að skapa námsfrið, vellíðan og jákvætt félagslegt umhverfi. Samhliða er stuðlað að jafnræði og samræmi á milli skóla og dregið úr neikvæðum áhrifum skjánotkunar.

  • Nemendur í 1. - 7. bekk geyma síma og símaúr heima eða á hljóðri stillingu í tösku.
  • Nemendur í 8. - 10. bekk geyma síma og símaúr á hljóðri stillingu þar sem hann truflar þá ekki.
  • Frímínútur eru skjálausar.
  • Fullorðnir eru fyrirmyndir.
  • Við lærum saman um ábyrga skjánotkun.
  • Við stöndum saman um símafrí í skóla- og frístundastarfi.

Símafrí í grunnskólum Kópavogs

Kynntu þér ítarlegri leiðbeiningar um símafrí sem er að finna í sáttmálanum sjálfum.

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir að deila skoðun þinni!

Ástæða

Aðrar upplýsingar

Símafrí í skóla- og frístundastarfi - Kópavogsbær