Beint í efni

Vinnu­skól­inn

Vinnuskólinn í Kópavogi býður íbúum á aldrinum 14–17 ára fjölbreytt og skemmtileg sumarstörf. Markmið skólans eru gleði, vinna og lærdómur, með áherslu á jákvæða innsýn í atvinnulífið

Þátttaka í Vinnuskólanum er kjörið tækifæri fyrir ungt fólk til að öðlast reynslu af launaðri vinnu í hvetjandi og jákvæðu umhverfi. Þar gefst þeim færi á að taka þátt í verkefnum sem bæta umhverfið, kynnast nýju fólki og læra um umhverfismál, samskipti og virðingu gagnvart vinnu.

Um­sókn og skrán­ing

Skráning í Vinnuskólann

Nemendur í Vinnuskólanum í Kópavogi skrá sig til vinnu með því að smella á græna hnappinn hér að ofan og skrá sig inn með rafrænum skilríkjum.

Mikilvægt er að allar upplýsingar sem beðið er um komi fram í umsókninni.

Vinna hjá stofn­un­um og fé­lög­um

Helstu verkefnin eru snyrting og fegrun bæjarins.

Vinnuskólinn býður nemendum á 16. og 17. ári upp á tækifæri til að starfa hjá ýmsum félögum og stofnunum í Kópavogi.

Íþróttafélög, leikskólar og aðrar stofnanir taka á móti nemendum sem fá að kynnast fjölbreyttum störfum og öðlast dýrmæta starfsreynslu. Nemendur sem ráðnir eru á þessa vinnustaði eru undanþegnir hefðbundnum tímabilum Vinnuskólans og vinna samkvæmt samkomulagi við stjórnendur vinnustaðarins á þeim tíma sem Vinnuskólinn heimilar.

Þegar sótt er um nám hjá Vinnuskólanum geta nemendur valið þá vinnustaði sem þeir hafa mestan áhuga á.

Athugið að engar undantekningar eru gerðar á aldurstakmörkum varðandi þessi störf.

Við val á nemendum til starfa er farið eftir umsögnum fyrri ára frá Vinnuskólanum.

Vinnu­tími og tíma­bil

Starfstími Vinnuskólans er frá maí til ágúst ár hvert.

Sumrinu er skipt í þrjú tímabil og geta nemendur valið allt að tvö þeirra.

Þau sem sóttu um áður en formlegur umsóknarfrestur rann út fá vinnu á þeim tímabilum sem óskað var eftir.

Hvar er hægt að fylgjast með vinnutíma?

Á vef Vinnuskólans er hægt að nálgast alla vinnutíma.

Vinnutíminn er uppfærður daglega og er lítið mál að koma með athugasemdir ef villa er í skráningu.

Hafið samband við flokkstjóra eða yfirmann ef skráning er ekki rétt.

Vef­ur Vinnu­skólans

Á innri vef Vinnuskólans er hægt að nálgast allar upplýsingar sem tengjast sumarvinnunni eins og stöðu umsóknar, vinnutíma og fleira.

Innskráning á vef Vinnuskólans

Laun og greiðslur

Launatímabil Vinnuskólans eru ákveðin ár hvert í samráði við launadeild Kópavogsbæjar.

Launatímabil 2026

Launatímabil Vinnuskólans hefst 10. hvers mánaðar og lýkur þann 9. næsta mánaðar.

Laun eru greidd 22. hvers mánaðar eða síðasta virka dag á undan.

Gott að vita

Reglur og fræðsla

Áður en vinna hefst er mikilvægt að kynna sér starfsreglur Vinnuskólans og þá fræðslu sem er í boði.

Skrif­stof­ur og opn­un­ar­tími

Skrifstofur Vinnuskólans eru í Askalind 5.

Sími: 441 9080
Tölvupóstur vinnuskoli(hjá)kopavogur.is.

Skrifstofurnar opna frá og með 10. maí og síðasti starfsdagur er 16. ágúst. Verkefnastjóri Vinnuskólans hefur aðsetur á Digranesvegi 1 þá mánuði sem skrifstofa Vinnuskólans er lokuð.

Opnunartími

  • Mánudaga - fimmtudaga 8:00 - 16:00.
  • Föstudaga 8:00 - 13:00

Fylgstu með

Hægt er að fylgjast með fréttum af starfinu á fésbókarsíðu Vinnuskólans