Beint í efni

Tón­list­ar­skólar

Í Kópavogi starfa þrír öflugir tónlistarskólar sem bjóða upp á metnaðarfullt tónlistarnám fyrir börn og ungmenni.

Nánari upplýsingar um nám, umsóknir og kennslu er að finna á heimasíðum skólanna.

Hægt er að nýta frístundastyrk hjá skólunum.

Skóla­hljóm­sveit Kópa­vogs

Skólahljómsveit Kópavogs var stofnuð árið 1966 og hefur verið mikilvægur hluti af tónlistarlífi bæjarins í áratugi.

Í sveitinni starfa að jafnaði um 175 hljóðfæraleikarar sem skiptast í þrjár sveitir eftir aldri og færni.

Markmið sveitarinnar er að efla tónlistaráhuga barna og ungmenna, veita góða þjálfun í hljóðfæraleik og skapa vettvang fyrir tónlistarflutning og samspil.

Sjá nánar
Tónlistarskóli Kópavogs

Tón­list­ar­skóli Kópa­vogs

Tónlistarskóli Kópavogs tók til starfa árið 1963. Við skólann stunda um 450 nemendur nám í hljóðfæraleik, söng, tónfræðum og tölvutónlist.

Hlutverk skólans er að veita nemendum góða undirstöðu í tónlist og undirbúa þau sem ætla áfram í frekara tónlistarnám.

Boðið er upp á forskóla fyrir yngri nemendur.

Sjá nánar
Tónsalir

Tónsalir

Tónsalir er einkarekinn rytmískur tónlistarskóli sem stofnaður var árið 2005.

Í skólanum er kennt í ýmsum rytmískum tónlistarstefnum, svo sem djassi, rokki og blús.

Boðið er upp á einstaklingskennslu á ýmis hljóðfæri og í söng. Nemendur geta einnig lært bókleg fög eins og tónfræði, tónheyrn og hljómfræði.

Skólinn leggur áherslu á fjölbreytt og skemmtilegt tónlistarnám.

Sjá nánar

Tón­list­ar­nám utan Kópa­vogs

Kópavogsbær getur tekið þátt í kostnaði við tónlistarnám barna utan bæjarins ef námið er ekki í boði í Kópavogi eða sérstakar aðstæður eiga við. Skilyrði er að nemandi stundi námið reglulega og nái ásættanlegum árangri.

Umsóknarfrestur er til 1. ágúst ár hvert. Með umsókn þarf að skila rökstuðningi fyrir námi utan Kópavogs og gögnum um námsárangur.