Höfuð-Borgin
Sértæk félagsmiðstöð fyrir ungmenni á aldrinum 16-20 ára eftir skóla. Skemmtilegt kvöldstarf er einnig í boði fyrir 16-25 ára.
Höfuð-Borgin er í Roðasölum 1.
Höfuð-Borgin er félagsmiðstöð fyrir ungmenni á aldrinum 16–20 ára með lögheimili í Kópavogi og miklar stuðningsþarfir. Starfið fer fram eftir skóla og leggur áherslu á félagslega þátttöku, samveru og öruggt, styðjandi umhverfi.
Starfsemin fellur undir lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Hvað er í boði?
Aðstaða og aðbúnaður
Í Höfuð-Borginni er lögð áhersla á að umhverfið taki mið af þörfum og áhuga þeirra ungmenna sem sækja starfið. Þar er fjölbreytt aðstaða fyrir leik, sköpun og afþreyingu.
Í alrými er hægt að spila, perla, föndra og sinna öðrum áhugamálum. Einnig er þar aðstaða til að horfa á sjónvarp og spila tölvuleiki, auk pool-borðs og píluspjalds.
Höfuð-Borgin býður einnig upp á fjölbreytta aðstöðu, meðal annars föndurherbergi, skynörvunarherbergi og leikjatölvur.
Rafíþróttaver og stúdíó
Í Höfuð-Borginni er rafíþróttaver með borðtölvum og búnaði til tölvuleikjaspilunar. Einnig er stúdíó þar sem ungmenni geta tekið upp efni, til dæmis hlaðvörp, söng eða talsetningu.
Hreyfing og vellíðan
Í húsnæðinu er aðstaða til hreyfingar þar sem ungmenni geta æft sig og fengið leiðsögn frá starfsfólki. Áhersla er lögð á að skapa aðgengilegt og hvetjandi umhverfi fyrir þau sem eru að taka sín fyrstu skref í hreyfingu.
Kvöldstarfið er gjaldfrjálst.
Kvöldstarfið er fyrir ungmenni á aldrinum 16–25 ára og fer fram alla þriðjudaga frá kl. 19:30–22:00.
Dagskráin er mjög skemmtileg og fjölbreytt og fer fram ýmist í húsi eða utan þess.
Til dæmis er boðið upp á:
- Spilakvöld
- Leiki
- Bíóferðir
- Karaoke
- Bingó
- Sund
Nánari upplýsingar um kvöldopnanir má finna á Instagramsíðu Höfuð-Borgarinnar @hofud_borgin.
Ef þörf er á auknum stuðningi er gert ráð fyrir að ungmenni mæti með stuðningsaðila.
Höfuð-Borgin býður upp á hefðbundna sumarvinnu hjá Kópavogsbæ í samvinnu við ungmennin og kynningu á almennum vinnumarkaði. Áhersla er á vinnu- og frístundaþjónustu fyrir ungmenni á aldrinum 16 til 25 ára og er hún sniðin að þeirra þörfum og getu.
Upplýsingar um starfsemi Höfuð-Borgarinnar og umsóknarferli veitir Brynhildur Bergmann Kjartansdóttir forstöðumaður.
Netfang: brynhildurbk@kopavogur.is
Sími: 441 9395 / 825 5913
Opnunartími
Mánudagar 12.00 - 17.00
Þriðjudagar 12.00 - 17.00
Miðvikudagar 12.00 - 17.00
Fimmtudagar 12.00 - 17.00
Föstudagar 12.00 - 17.00
Heilsdagsopnun er:
- Í vetrarfríum.
- Í jóla- og páskaleyfi.
- Á starfsdögum framhaldsskóla.
Opnunartími þá er frá kl. 08:00–17:00.
Lokað er á rauðum dögum.
Akstursþjónusta
Boðið er upp á akstur frá framhaldsskóla í Höfuð-Borgina á starfstíma skólanna.