Lóðir, fasteignir og gjöld
Þegar kemur að lóðum og fasteignum er margt sem þarf að hafa í huga, allt frá gjöldum og samningum til eignaskipta og skráningar.

Lóðarleigusamningar
Vegna lóða í eigu Kópavogsbæjar eru gerðir lóðarleigusamningar til 50 ára, undirritaðir af þinglýstum lóðarhöfum og bæjarstjóra. Samningar byggja á skráðri stærð lóðar og þarf að endurnýja við sölu eignar eða þegar eldri samningar renna út. Almennt eru ekki takmarkanir á því að endurnýja lóðarleigusamninga, nema bæjarstjórn ákveði vegna skipulags eða af öðrum ástæðum aðra notkun á viðkomandi lóð. Gildur lóðarleigusamningur þarf að vera til staðar við afsal eignar.
Fasteignaskráning
Fasteignaskrá geymir upplýsingar um allar lóðir og mannvirki sem á þeim standa.
Byggingarfulltrúi er ábyrgur fyrir að Þjóðskrá Íslands berist upplýsingar um lönd og lóðir. Því tilheyrir breytingar á þeim og mannvirkjum sem á þeim standa.
Byggingarfulltrúi áritar eignaskiptayfirlýsingar áður en þeim er þinglýst. Með árituninni er staðfest að þær séu í samræmi við samþykktar teikningar og reglugerð um eignaskiptayfirlýsingar. Byggingarfulltrúi tilkynnir Þjóðskrá um framvindu byggingarstiga.
Opinber stærðaskráning lóða og húsa er í höndum byggingarfulltrúa og er skráning lóða birt í samræmi við mæliblöð. Mæliblaðagerð fyrir lóðir í eigu Kópavogsbæjar er í höndum skrifstofu umhverfissviðs.
Skráning húsa byggir einvörðungu á skráningartöflum sem eru hluti af aðalteikningum. Ef eigandi hefur athugasemdir við stærðarskráningu húss síns getur hann sótt um leiðréttingu á skráningu og sent með skráningartöflu/r og teikningu ef það á við.
Fasteignamat og brunabótamat er í umsjón Þjóðskrár Íslands sem annast fasteignaskrá.