Aðalskipulag
Aðalskipulag er skipulagsáætlun sem nær til alls sveitarfélagsins og leggur grunn að deiliskipulagi.
Hvað felst í aðalskipulagi?

Aðalskipulag mótar framtíðarsýn sveitarfélagsins og skilgreinir forsendur fyrir frekari skipulagsvinnu.
Aðalskipulag Kópavogs 2019-2040 var samþykkt í bæjarstjórn Kópavogs
28. september 2021 og staðfest þann 28. desember 2021.
Í aðalskipulagi er mótuð stefna sveitarfélagsins um:
- Landnotkun.
- Byggðaþróun og byggðamynstur.
- Samgöngu- og þjónustukerfi.
- Umhverfismál.
Aðalskipulag er sett fram í greinargerð og uppdráttum.
- Greinargerð inniheldur stefnu og umfjöllun um helstu málaflokka
- Uppdrættir sýna landnotkun, samgöngur, vernd og aðrar takmarkanir
Greinargerðin skiptist í kafla og viðauka, þar á meðal umhverfisskýrslu, greiningar og yfirlit yfir breytingar.
- Rammahluti aðalskipulags fyrir vestanvert Kársnes (pdf)
- Rammahluti aðalskipulags fyrir vestanvert Kársnes (flettiskjal)
- Rammahluti aðalskipulags fyrir fyrstu lotu Borgarlínu (pdf)
- Rammahluti aðalskipulags fyrir fyrstu lotu Borgarlínu (flettiskjal)
- Vatnsendahvarf - breyting á aðalskipulagi (pdf)
- Leikskóli við Skólatröð - breyting á aðalskipulagi (pdf)
Aðalskipulag byggir á:
- Skipulagslögum.
- Landsskipulagsstefnu.
- Svæðisskipulagi (ef við á).
- Upplýsingum um náttúru og menningarminjar.
Einnig skal gæta samræmis við skipulag nágrannasveitarfélaga og stefnu um sjálfbæra þróun.
Skipulagsvinna og útgáfu framkvæmdaleyfis
Gjaldskrá uppfærð í október 2026
Þjónusta
Upphæð
Afgreiðslugjald
17.782 kr.
Gjald v. vinnu skipulagsfulltrúa við gerð lýsingar skipulagsáætlunar/yfirlestur og yfirferð
255.913 kr.
Umsýslugjald vegna fyrirspurna /umsagna
23.068 kr.
Aðalskipulag
Þjónusta
Upphæð
Afgreiðslugjald
17.782 kr.
Breytingar skv. 1 mgr 36 gr
424.121 kr.
Breytingar skv 2 mgr 36 gr
265.525 kr.
Auglýsingakostnaður
skv. reikningi
Deiliskipulag verulegar breytingar
Þjónusta
Upphæð
Afgreiðslugjald
17.782 kr.
Gerð deiliskipulag- og kynningaruppdrátta
skv. reikningi
Umsýslukostnaður vegna málsmeðferðar
334.010 kr.
Auglýsingakostnaður
skv. reikningi
Deiliskipulag óverulegar breytingar
Þjónusta
Upphæð
Afgreiðslugjald
17.782 kr.
Gerð deiliskipulag- og kynningaruppdrátta
424.121 kr.
Umsýslukostnaður vegna málsmeðferðar skv. 2. mgr.
102.125 kr.
Umsýslukostnaður vegna málsmeðferðar skv. 3. mgr.
84.103 kr.
Auglýsingakostnaður
skv. reikningi
Grenndarkynning á byggingarleyfi skv. 44 gr
Þjónusta
Upphæð
Afgreiðslugjald
17.782 kr.
Umsýslukostnaður vegna málsmeðferðar
102.125 kr.
Framkvæmdarleyfi
Þjónusta
Upphæð
Afgreiðslugjald
17.782 kr.
Útgáfa framkvæmdarleyfis skv. 13 gr
110.536 kr.
Útgáfa framkvæmdarleyfis skv. 14 gr (matsskyld framkvæmd)
259.518 kr.
Gjald vegna auglýsingar á framkvæmdarleyfi
skv. reikningi
Allar gjaldskrár Kópavogsbæjar eru birtar með fyrirvara um villur.
Saga aðalskipulags í Kópavogi
Vinna við fyrsta heildarskipulag Kópavogs hófst árið 1965 í kjölfar nýrra skipulagslaga frá 1964. Skipulagið var samþykkt 1970 og tók til svæðisins vestan Reykjanesbrautar.
Fyrsta aðalskipulag alls heimalandsins (svæðisins vestan Elliðavatns) var samþykkt í bæjarstjórn 1985 fyrir skipulagstímabilið 1983-2003. Hvorug þessarar áætlana hlaut staðfestingu ráðherra. Fimm sinnum eftir það hefur aðalskipulag bæjarins verið endurskoðað:
Aðalskipulag Kópavogs 2012-2024, staðfest 24. febrúar 2014.
Aðalskipulag Kópavogs 2000-2012, staðfest 23. apríl 2002.
Aðalskipulag Kópavogs 1992-2012, staðfest 29. apríl 1994.
Aðalskipulag Kópavogs 1988-2008, staðfest 23. apríl 1990.
Nánari upplýsingar
Fyrirspurnir og ábendingar má senda í gegnum ábendingakerfi bæjarins eða á skipulag@kopavogur.is