Skipulag
Með skipulagi er ákveðið hvernig land er nýtt og bærinn þróast. Í skipulagi er meðal annars mótuð stefna um íbúðar- og atvinnusvæði, samgöngur, þjónustu, græn svæði og þróun hverfa.

Aðalskipulag
Aðalskipulag er skipulagsáætlun sem nær til alls sveitarfélagsins og leggur grunn að deiliskipulagi.
Sjá nánar
Deiliskipulag
Við gerð deiliskipulags er byggt á stefnu aðalskipulags og hún útfærð fyrir viðkomandi svæði til að myndist heildstætt yfirbragð mannvirkja og landslags.
Sjá nánar
Hverfisáætlun
Hverfisáætlun er stefnumótandi vinna sem lýsir stöðu hverfis og framtíðarsýn þess. Hún er vísir að gerð deiliskipulags og framkvæmdaáætlun.
Sjá nánar
Skipulag og framkvæmdaleyfi í kynningu
Hér eru birtar skipulagshugmyndir og framkvæmdaleyfi sem eru í kynningu. Íbúar geta kynnt sér verkefnin og komið á framfæri athugasemdum.
Sjá nánar
Skipulagsskilmálar
Skipulagsskilmálar segja til um hvernig byggja má á deiliskipulögðum svæðum, til dæmis varðandi stærð bygginga, þakform, útlit og frágang lóða.
Sjá nánar
Svæðisskipulag
Svæðisskipulag er skipulagsáætlun sem nær til tveggja eða fleiri sveitarfélaga sem mynda sameiginlegt svæði.
Hlutverk þess er að samræma stefnu um landnotkun, samgöngu- og þjónustukerfi, umhverfismál og þróun byggðar til lengri tíma.
Sjá nánar
Þéttingarsvæði
Þéttingarsvæði eru svæði innan núverandi byggðar þar sem unnið er að þróun, uppbyggingu eða breytingum á skipulagi.
Hér má nálgast upplýsingar um svæðin sem eru í vinnslu hjá Kópavogsbæ.
Sjá nánar