Beint í efni

Hverf­is­áætl­un

Hverfisáætlun er stefnumótandi vinna sem lýsir stöðu hverfis og framtíðarsýn þess. Hún er vísir að gerð deiliskipulags og framkvæmdaáætlun.

Hverf­is­áætl­anir í Kópa­vogi

Hverfisáætlanir snúast um að þróa hverfi Kópavogs í nánu samráði við íbúa, með áherslu á sjálfbærni og lífsgæði.

Frá árinu 2014 hefur verði unnið að hverfisáætlunum fyrir hverfin fimm í Kópavogi - Kársnes, Digranes, Smára, Fífuhvamm og Vatnsenda.

Hverfisáætlun hefur ekki sama lagalega gildi og hverfisskipulag, en veitir mikilvæga heildarsýn yfir hverfið í dag og framtíðarþróun þess.

Hverfisáætlunin gerir grein fyrir sögu og uppbyggingu hverfisins ásamt því að lýsa byggðarmynstri, náttúrulegu umhverfi, yfirbragði byggðarinnar og samgöngumannvirkjum.

Hlutverk hverfisáætlana er einnig að setja fram nánari skilgreiningar og ákvæði fyrir hverfin og afmarka einstaka götumyndir sem ástæða þykir að varðveita og vernda sérstaklega.

Einnig eru tölfræðilegar upplýsingar, þjónusta fyrir íbúa og ýmsar aðrar áhugaverðar staðreyndir teknar saman.

Hverfin í Kópa­vogi

Kópavogur skiptist í fimm hverfi.

  • Kársnes
  • Digranes
  • Smárinn
  • Fífuhvammur
  • Vatnsendi

*Bæta við gátlistum og gögnum

Sam­ráð við íbúa

Íbúar gegna lykilhlutverki í mótun hverfisáætlana og eru hvattir til að taka virkan þátt.

Áhersla er lögð á virkt samráð við íbúa og aðra hagsmunaaðila á meðan á vinnu stendur.

Íbúar eru hvattir til að taka þátt, miðla reynslu sinni og koma á framfæri hugmyndum um sitt nærumhverfi.

Fundað er með íbúum hvers hverfis þar sem unnið er í hópum að því að greina styrkleika, áskoranir og tækifæri.

Ábendingar

Íbúar og aðrir hagsmunaaðilar geta sent inn ábendingar um málefni sem varða hverfi Kópavogs, til dæmis:

  • Stígakerfi
  • Opin svæði
  • Sorpmál
  • Eða önnur málefni í nærumhverfi.

Ábendingar er hægt að senda í gegnum ábendingakerfi bæjarins og einnig er hægt að senda tölvupóst á póstfangið skipulag(hjá)kopavogur.is

Mark­mið og áherslur

Hverfisáætlun er stöðuskýrsla og grunnur að skipulagi og framkvæmdum í hverfinu til næstu ára.

Í vinnu við hverfisáætlanir er lögð áhersla á íbúa, með sjálfbæra þróun og lýðheilsu að leiðarljósi. Íbúum gefst kostur á að taka virkan þátt í að móta sitt nærumhverfi.

Áherslur hverfisáætlana um að skapa lýðheilsu- og vistvæn hverfi í góðu samráði við íbúa eru í samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem bæjarstjórn Kópavogs hefur samþykkt að hafa sem yfirmarkmið Kópavogsbæjar. Það er stefna bæjaryfirvalda að auka sjálfbærni og samráð í skipulagsmálum og er hverfisáætlunarvinnan gott dæmi um verkefni sem samræmist heimsmarkmiði nr. 11, um að skapa sjálfbær og aðgengileg samfélög.

Mat og greining

Við upphaf vinnunnar var útbúinn gátlisti til að meta gæði byggðar og umhverfis í hverfunum út frá sjálfbærni og lýðheilsu, með sérstaka áherslu á íbúa.

Helstu matsþættir eru:

  • Samfélagið
  • Athafnir daglegs lífs
  • Efnahagur
  • Manngert umhverfi
  • Náttúrulegt umhverfi
Hverfisáætlun - Kópavogsbær