Álfhólsvegur 29
Grenndarkynning.
Á fundi skipulagsráðs Kópavogs þann 16. desember 2024 var samþykkt með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn fyrir Álfhólsveg 29.
Sótt er um leyfi fyrir tveggja hæða fjölbýlishúsi með fjórum íbúðum á lóðinni alls 446,3 m² að flatarmáli. Gert er ráð fyrir fjórum bílastæðum á suðurhluta lóðarinnar ásamt hjólageymslu og sorpskýli.
Athygli er vakin á því að meðfylgjandi uppdrættir eru ekki í réttri blaðastærð og því er mælikvarðinn ekki réttur. Uppdrættirnir eru aðgengilegir í réttum mælikvarða á vef Kópavogsbæjar og á Skipulagsgáttinni.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 1534/2024, eigi síðar en 30. janúar 2025. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.
Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra ganga í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.