Auglýsing um framkvæmdaleyfi á Suðurlandsvegi. Lagning strengja.
Kópavogsbær hefur samþykkt að veita leyfi vegna fyrirhugaðra framkvæmda við lagningu
11 kV jarðstrengs ásamt ljósleiðara og jarðvír í landi Kópavogs frá Lögbergsbrekku sunnan
við Suðurlandsveg að malarnámum í Þrengslum. Á leiðinni verða settar upp níu dreifistöðvar
til rafmangsfæðingar við hús og búnað í leiðinni. Verður strengurinn plægður sunnan við Suðurlandsveg
í gamla þjóðveginn þannig að rask á landi verði í lágmarki. Strengurinn verður með
tengimöguleika við Hellisheiðarvirkjun í gegnum borholur sem staðsettar eru við Þrengslaveg.
Framkvæmdin fellur ekki undir lög um mat á umhverfisáhrifum, þó svo að strengirnir fari um
verndarsvæði.
Í framkvæmdaleyfinu koma fram þau hönnunargögn og önnur gögn sem framkvæmdaleyfið
byggir á sem og skilyrði og skilmálar leyfisveitenda.
Öll gögn vegna framkvæmdaleyfisins eru aðgengileg á heimasíðu Kópavogsbæjar.
Slóðin er: https://www.kopavogur.is/is/ibuar/skipulagsmal/skipulag-i-kynningu.
Ákvörðunin er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála á grundvelli 52. gr.
skipulagslaga, nr. 123/2010. Kærufrestur er einn mánuður frá auglýsingu þessari þ.e. til og með
31. nóvember 2021. Vakin er athygli á því að þeir einir geta kært ákvörðunina sem eiga lögvarða
hagsmuni tengda henni.