Í breytingunni felst að lóðinni verði skipt upp í sex lóðir fyrir þrjú parhús á tveimur hæðum í stað einbýlishúss. Nýtingarhlutfall lóða verður frá 0.2 til 0,33. Tvö bílastæði verða á hverri lóð. Uppbyggingu á lóð verður áfangaskipt, núverandi hús mun víkja við uppbyggingu seinni áfanga.
Ofangreind kynning er aðgengileg í Skipulagsgátt, www.skipulagsgatt.is, málsnr. 1301/2026.
Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvött til að kynna sér tillöguna. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum Skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 1301/2026, eigi síðar en 7. janúar 2027.